A A A A A+ a-


Greinar & pistlar

Styttum vinnutímann!!

Ekkert kæmi íslenskum fjölskyldum betur en almenn stytting vinnutímans. Það er hins vegar mjög áhugavert að þessi einföldu sannindi virðast ekki rata inn í kollinn á þeim sem mest mæra fjölskyldur og fjölskyldulíf. Ef til vill er þróun íslenskra fjölskyldna ekki jafn vel þekkt og hún ætti að vera. Ef til vill lifum við að verulegu leyti enn í fortíðinni eða að minnsta kosti í fortíðardraumum. Hyggjum aðeins að helstu þróunarlínum. Stóran hluta 20. aldarinnar einkenndist íslenskt fjölskyldulíf af afskaplega skýrri verkaskiptingu karla og kvenna. Karlar áttu að helga sig launavinnu og athöfnum hins opinbera rýmis en konurnar skyldu sjá um heimilið og börnin, umhyggjuna og einkalífið.

Lesa meira
Sértækar leiðir til að jafna völd karla og kvenna í atvinnulífinu
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð

Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar

Einsleitni eigenda og stjórnenda íslenskra fyrirtækja einkenndi íslenskt atvinnulíf fyrir fjármálakreppuna. Hinir svokölluðu útrásarvíkingar voru fæddir um 1970 og birtust alþjóð sem jakkafataklæddir karlar. Talið er að þessi einsleitni hafi átt sinn þátt í hruni bankakerfisins og kallað er eftir aðgerðum sem tryggja fjölbreytni meðal forystufólks atvinnulífsins. Með fjölbreytni er átt við val á bæði körlum og konum með ólíkan bakgrunn til forystu til að tryggja að mismunandi skoðanir og gagnrýnin hugsun liggi til grundvallar ákvarðanatöku og stefnumótun í atvinnulífinu.

Lesa meira
Sveitarstjórnarkosningarnar 2010 og jafnrétti

Í kjölfar kosninga, 29. maí síðastliðinn, eru konur nú 40% kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum. Breytingin milli kosninga 2006 og 2010 nemur því fjórum prósentustigum. Árangurinn telst viðunandi áfangi á leið til þess að tryggja jafnari þátttöku kynja í ákvarðanatöku.

Lesa meira
Fjöldasamstaða kvenna 24. - 25. október 2010

Í tilefni þess að 35 ár eru liðin frá fyrsta kvennafrídeginum, stofnaði kvennahreyfingin ný regnhlífarsamtök Skotturnar sem hafa það hlutverk að halda utan um 24. október í ár. Undirbúningur hefur staðið yfir frá því í október. Þess má geta að Skottur voru kvendraugar sem gjarnan gengu í rauðum sokkum og erfitt var að kveða þær niður. Að Skottunum standa 15 kvennasamtök, bæði þau stærstu, elstu, róttækustu og nýjustu.

Lesa meira
Allt að vinna og engu að tapa

Rannsóknir sýna að jafnrétti kynjanna eykur velferð, bætir rekstur fyrirtækja og stofnana, starfsandi batnar, hjónabönd og sambúð endist lengur og betur er búið að börnum.

Lesa meira
Það læra börnin sem fyrir þeim er haft

Kynbundið náms- og starfsval er ekki á undanhaldi og fordómar samfélagsins og lág laun koma í veg fyrir að karlar sæki í hefðbundin kvennastörf. Ungir karlar reikna með hærri launum en ungar konur og yngri kynslóðir hafa neikvæðara viðhorf til jafnréttis en þær sem eldri eru. Kemur þetta á óvart?

Lesa meira
Aðgerðir sveitarfélaga gegn ofbeldi í nánum samböndum

Sveitarfélögum ber ekki skylda til að gera aðgerðaáætlanir vegna ofbeldis gegn konum í nánum samböndum. Í Akureyrarbæ er nú unnið að aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum. Fleiri sveitarfélög munu vafalaust fylgja á eftir og æskilegt væri að öll sveitarfélögin í landinu samþykktu svipaðar aðgerðaáætlanir.

Lesa meira
Vinnan skapar manninn – en heimilið konuna

Umræða um mikilvægi þess að skapa atvinnu, “koma hjólum atvinnulífsins í gang” hefur verið mikil og stöðug frá bankahruninu í október 2008, enda hafa Íslendingar ekki upplifað jafn hátt atvinnuleysi í áratugi.

Lesa meira
Hin þögla þjáning

Kynbundið ofbeldi er ævafornt fyrirbæri en samkvæmt íslenskum lögum var það lengi vel réttur húsbænda að lemja konur sínar og foreldra að flengja börn sín. Reglur voru til sem sögðu hversu þykkt prikið mátti vera sem konurnar og börnin voru lamin með.

Lesa meira
Kæri íslenski karlmaður

Kæri íslenski karlmaður. Bréf þetta er ritað af vinkonu þinni og aðdáanda, sem á maka, son, föður, bræður, frændur og vini í þínum röðum.

Lesa meira
Skráðar greinar: 52 - Síða: 1 af 6 Fyrsta síða Til baka Áfram Síðasta síða



Jafnréttisdagatal
Fyrri mánuðurseptember 2010Næsti mánuður
þrmifilasu
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Afmælisráðstefna Jafnréttisstofu
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10