Á atubrðardagatali má finna aðra atburði sem tengjast jafnréttismálum.
Ráðstefnur sem er lokið:
Kynbundinn launamunur - Aðferðir til úrbóta
Jafnréttisstofa í samstarfi við Ár jafnra tækifæra og félagsmálaráðuneytið efndi til ráðstefnunnar Kynbundinn launamunur; Aðferðir til úrbóta þann 23. nóvember 2007 kl. 13-16 á Hótel Sögu.
Dagskrá:
13:00 Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, setur fundinn
13:10 Tekjumunur karla og kvenna: Upplýsingar úr skattframtölum
Ingólfur V. Gíslason, sviðsstjóri rannsóknarsviðs Jafnréttisstofu.
13:45 Kynjavöktun í aðdraganda kjarasamninga
Maríanna Traustadóttir, jafnréttisfulltrúi ASÍ
14:05 Áform og aðgerðir - til að greina og eyða kynbundnum launamun
Sigríður Lillý Baldursdóttir, starfandi forstjóri Tryggingarstofnunnar
14:25 Kaffihlé
14:45 Tala minna – gera meira
Ingibjörg Óðinsdóttir, forstöðumaður mannauðssviðs Skýrr
15:05 Markvissar aðgerðir skila árangri
Anna Jörgensdóttir, starfsmannastjóri Hafnarfjarðarbæjar
15:25 Pallborðsumræður
Fundarstjóri: Mörður Árnason
Tea for Two - Jafnréttisvogin
Lokaráðstefna Evrópuverkefnisins Tea for two, sem nefnt hefur verið Jafnréttisvogin á íslensku, verður haldinn í Reykjavík þann 16. nóvember 2007.
Nánari dagskrá auglýst síðar.
Heimasíða verkefnisins.
Karlar til ábyrgðar - Ráðstefna
Í tilefni Árs jafnra tækifæra stóð Jafnréttisstofa að skipulagi ráðstefnu sem mun bar heitið Karlar til ábyrgðar. Hún var haldin fimmtudaginn 30. ágúst 2007 í Kornhlöðunni í Reykjavík frá klukkan 9 til 16 og verður dagskráin tvískipt.
Fyrir hádegi var lokaður fundur, námsstefna, þar sem Marius Råkil, norskur sálfræðingur og forsvarsmaður verkefnisins Vestfjord /Alternative to Violence flutti erindi þar sem hann, á ítarlegan máta, kynnti þetta verkefni og reynsluna af því. Á þennan fund voru boðaðir fulltrúar frá ýmsum stofnunum, félögum og ráðuneytum.
Eftir hádegi var svo haldinn opinn fundur þar sem Marius verður einnig með erindi ásamt íslenskum sérfræðingum. Þar á meðal voru Einar Gylfi Jónsson og Andrés Ragnarsson sálfræðingar sem sinna meðferðinni í Karla til Ábyrgða verkefninu hér á landi. Jóhanna Sigurðardóttir opnaði fundinn. Aðrir þátttakendur voru dr. Berglind Guðmundsdóttir, sálfræðingur Áfallamiðstöðvar slysa og bráðadeildar LSH og Rannveig Þórisdóttir, deildarstjóri Upplýsinga- og áætlunardeildar Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Hugrún R. Hjaltadóttir var fundarstjóri. Markmiðið með þessari ráðstefnu var að standa fyrir vitundarvakningu á ábyrgð karla á ofbeldi gegn konum.
Karlar til ábyrgða er verkefni sem er eina sérhæfða meðferðaúrræðið fyrir karla sem beita ofbeldi á heimilum hér á landi.
Mælistikur á launajafnrétti á Norðurlöndunum
Kynning á niðurstöðum norræna verkefnisins På sporet av likelön, 2006
Málþing haldið á vegum félagsmálaráðuneytis og Jafnréttisstofu Þjóðminjasafnið kl. 15:00 miðvikudaginn 17. maí 2006.
Jón Kristjánsson félags- og jafnréttismálaráðherra flutti ávarp.
dr. Lilja Mósesdóttir, verkefnisstjóri: Mælistikur og launamunur kynjanna á Norðurlöndunum
Andrea G. Dofradóttir, sérfræðingur hjá Félagsvísindastofnun HÍ: Rannsóknir á launamun kynjanna á Norðurlöndunum
Sigurbjörg Ásgeirsdóttir, sérfræðingur: Aðgerðir til að draga úr launamun kynjanna á Norðurlöndunum
Í lokinn voru áhugaverðar pallborðsumræður.
Fundarstjóri: Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu.
Lokaskýrslu verkefnisins er að finna í Lesefni undir liðnum í rafræn útgáfa.
Íþróttir, fjölmiðlar og staðalímyndir:
Sports, Media and Sterotypes, 2006
Lokaráðstefna Evrópuverkefnisins var haldin á Hótel Loftleiðum í Reykjavík þann 20. janúar. Þar voru niðurstöður rannsóknarinnar kynntar sem og fræðsluefni sem unnið hefur verið úr niðurstöðum.
Verkefnið samanstendur af rannsókn sem gerð var í fimm Evrópulöndum á staðalímyndum og endurspeglun kynjanna í íþróttum og íþróttafréttum en vinna við það hófst í nóvember 2004. Niðurstöður rannsóknarinnar voru notaðar til að hanna fræðsluefni fyrir íþróttafréttamenn, íþróttakennara og þjálfara. Fræðsluefnið verður gefið út á margmiðlunarformi. Markmið fræðsluefnisins er að hvetja til breytinga á birtingamyndum kynjanna í íþróttum og íþróttafréttum með því að auka meðvitund um áhrif einsleitrar endurspeglunar af íþróttakonum og körlum.
Jafnréttisstofa hefur stjórnað þessu verkefni en samstarfsaðilar koma frá stofnunum í Noregi, Austurríki, Litháen og Ítalíu. Samstarfsaðilar verkefnisins á Íslandi eru Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri, námsbraut í fjölmiðlafræði við Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands, Samtök íþróttafréttamanna og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands.
Dagskrá.
Kyngerfi, umhverfi og samfélagsþróun:
Conference on Gender, Environment and Societal Development
in West Nordic and Arctic Countries, 2004
Jafnréttisstofa, í samvinnu við Norðurlandaráð, Norrænu ráðherranefndinni og aðra aðila, hélt ráðstefnu á Akureyri þann 13.-14. nóvember 2004. Ísland gegndi formennsku í norrænu samstarfi 2004 undri þemanu Nordic Resources. Auðlindir eins og uppbygging samfélagsins, félagslegar aðstæður, menningarleg arfleifð og náttúruauðlindir voru í brennidepli. Höfðuð áherslan hefur hinsvegar verið lögð á fólkið sjálft ásamt þróun og nýtingu mannauðs. Vestnorrænu og Norðurskautslöndin og þjóðirnar þar eiga það sameiginlegt að treysta á náttúrauðlindir sínar. Þess vegna er nauðsynlegt fyrir áframhaldandi þróun þessara landa að tryggja að auðlindirnar séu sjálfbærar. Sameinuðu þjóðirnar hafa gert það ljóst að sjálfbærri þróun verður ekki náð án jafnréttis kynjanna. Mörg lítil samfélög við sjávarsíðuna á Norðurskautssvæðinu eru að verða vitni að brotthvarfi kvenna af svæðunum. Það er þess vegna mikilvægt að rannsaka samspil kyns og umhverfis þegar á að móta félagslega þætti á þessum svæðum. Markmið þessarar ráðstefnu var að skapa rúm fyrir samvinnu þar sem fram koma hugmyndir og reynsla sem getur nýst fræðimönnum og þeim sem móta stefnu fyrir framtíðina.
Erindi voru haldin í fjórum málstofum:
Women's Access to Decision-Making:
Inga Dóra G. Markussen, Greenland: Women's Status in Greenlandic Society
Björg Jacobsen, Faroe Islands: Faroese Women in Politics
Anna Karlsdóttir, Iceland: Women's Access to Decision-Making in the Fisheries Industry
Stefanía Traustadóttir, bæjarstjóri Ólafsfjarðar, stýrði umræðum.
Violence Against Women:
Mariekathrine Poppel, Greenland: Men's Violence Against Women in Greenland
Elin Reinert Planck, Faroe Islands: Resources for Abused Women in the Faroe Islands
Jane George, Canada: Why does violence against women continue in Canada's North?
Sigríður Halldórsdóttir, Háskólanum á Akureyri, stýrði umræðum.
Labour Markets and Migration:
Ingólfur V. Gíslason, Iceland: Women Leave, Men Stay.
Sigrid Skålnes, Norway: Young Women in the Periphery and Their Expectations for the Future.
Þóroddur Bjarnason, Iceland: Changes in the Labour Market and Their Impact on Migration.
Þorbjörg Inga Jónsdóttir, Jafnréttisráði, stýrði umræðum.
Environmental Issues in the North:
Þorvarður Árnason, Iceland: Icelanders' Environmental Consciousness.
Bente Foldvik, Norway: The Perception of the North in Women's Media.
Tero Mustonen, Finland: Never-ending Perfect Circle of Seasons - Snow Change, Indigenous Knowledge and Education for a Post-Colonial Arctic.
Mika Flöjt, Finland: Role of Arctic Communities in Environmental Negotiations.
Silja Bára Ómarsdóttir, Jafnréttisstofu, stjórnaði umræðum.
Að lokum flutti Annita á Fríðriksmörk, frá Færeyjum, lokaorð ráðstefnunnar.
Konur og karlar á norrænum vinnumarkaði, 2004
Dagana 11.-12. nóvember 2004 var haldið norrænt málþing á Grand Hótel um stöðu karla og kvenna á norrænum vinnumarkaði. Fyrri dagurinn bar yfirskriftina Karlar í ,,kvennastörfum". Þar fluttu eftirfarandi erindi:
Erik Hauglund, Menn i barnehager - like viktig som kvinner i styrerommet.
Þórður Kristinsson, Fields of masculinity - Icelandic men in nursing.
Steinun Hrafnsdóttir, In the World of Women - Men in female-dominated work organizations.
Marie Nordberg, Men in Female Occupations - Gender flexible models for gender transformations or for hegemonic masculinity?
Hafsteinn Karlsson, En mann bland kvinnlige lärare.
Seinni dagurinn bar yfirskriftina: Kynskiptur vinnumarkaður. Þar fluttu eftirfarandi erindi:
Helinä Melkas, Gender segregation in Nordic labor markets: Trends and challenges.
Lárus Blöndal, Changes in the Icelandic occupational Structure.
Fríða Rós Valdimarsdóttir, Föreldraledighet i Norden, Lösning eller ytterligere problem?
Steen Bagöe Nielsen, Mænd i omsorgs-, social- og sundhedsuddannelser. Nye veje med forhinderinger.
Kjartan Ólafsson, The future haven of gender equalitu? Occupational preferences of Icelandic youths 1968 - 2003.
Kynja- og jafnréttissjónarmið í norrænu samstarfi, 2004
Ráðstefnan var haldin 4. maí 2004, á Akureyri undir yfirskriftinni: Integrering av ett köns- och jämnsälldshetsperspektiv i NMRs verksamhet. Eftirfarandi fluttu erindi:
Árni Magnússon, félagsmálaráðherra setti fundinn.
Siv Friðleifsdóttir, Samstarfsráðherra norðurlandanna, Jämstäldhet och deomkrati.
Sigurður Helgason, starfsmaður norrænu ráðherranefndarinnar, Den norksa budgeten utfrån ett jämställdshetsperspektiv.
Lise Busk-Jensen, bókmenntafræðingur, Kön, kultur og ligestilling.
Ingólfur V. Gíslason, félagsfræðingur hjá Jafnréttisstofu, Menn som norm?
Siv Hellen, lögfræðingur, Norræna Fjárfestingarbankanum. Presentation av kvinnolån í Baltikum og NV Ryssland.
Dr. Rachael Lorna Johnstone, Háskólanum á Akureyri, Human Rights for Women at the United Nations.
Jón Sigurðsson, hjá Norræna Fjárfestingarbankanum var fundarstjóri.
Menning, umgjörð, umhyggja: möguleikar karla og kvenna til foreldraorlofs
Culture,Custum and Caring: Men's and Women's Possibilites to Parental Leave, 2004
Lokaráðstefna verkefnis, styrkt af European Commission, var haldið á Hótel KEA. Það var unnið á árunum 2002-2004 í fjórum löndum, Spáni, Þýskalandi, Noregi og Íslandi. Jafnréttisstofa stjórnaði verkefninu en það var unnið í samstarfi við Rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum, Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri, auk verktaka sem munu sjá um gerð sjónvarpsmyndar og heimasíðu. Dr. Þorgerður Einarsdóttir og Gyða Margrét Pétursdóttir önnuðust rannsóknina hér á landi.
Tilgangur verkefnisins er að skoða samspil kynjahlutverka, menningar og siðvenja, laga og reglugerða, og hvernig þessir þættir hindra eða auka möguleika kvenna og karla til að vinna saman að uppeldi barna sinna. Sérstaklega verður horft til fæðingar- og foreldraorlofsreglna og nýtingu annars vegar kvenna og karla hins vegar á þeim réttindum sem í hverju landi bjóðast.
Lokaskýrsla verkefnisins.
Í kjölfar Alþingiskosninga.
Málþing um lýðræði og kynja- og byggðasjónarmið, 2003
Málþingið var haldið þann 23. maí á vegum Félagsvísinda- og lagadeildar Háskólans á Akureyri í samvinnu við Jafnréttisstofu og Jafnréttisráð. Fundarstjóri var Elín Hirst, fréttastjóri RÚV. Dagskráin hófst á setningu Mikael Karlsson, deildarforseta. Erindi voru eftirfarandi:
Hvers vegna á hlutfall kynja á þingi að vera jafnt? - Valgerður H. Bjarnadóttir
Er rétt að spila alltaf maður á mann? - Grétar Þór Eyþórsson
Konur, kosningar og kjördæmaskipan - Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir
Skiptir kyn nokkru máli í stjórnmálum? - Sigríður Andersen
Eru byggðasjónarmiðin hindrun á vegi kvenna í stjórnmálum? - Svanfríður Jónasdóttir
Flokksforysta ræður framgangi kvenna - Una María Óskarsdóttir
Pallborð með fulltrúum stjórnmálaflokkanna. Una María Óskarsdóttir, stjórnandi verkefnis um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum hóf umræðuna. Í nýafstöðnum þingkosningum fækkaði konum á alþingi Íslendinga. Á sama tíma fjölgaði fulltrúum Reykvíkinga. Sú spurning hlýtur að vakna hvort þessar breytingar á samsetningu þingsins skipti raunverulega einhverju máli. Hver eru grundvallarrök fyrir nauðsyn þess að konur séu ámóta margar og karlar í forystusveit (íslenskra) stjórnmála? Með sama hætti má spyrja hvort eitthvað sé við það að athuga að mikill meirihluti þingmanna komi frá Reykjavík og nágranna byggðarlögum höfuðborgarinnar? Hvaða kröfur gerir lýðræðið til samsetningar þingsins? Þjónar það hagsmunum allra að gera landið að einu kjördæmi? Á málþinginu var leitað svara við því hvaða lýðræðislegu sjónarmið bæri að hafa að leiðarljósi við kjördæmaskipan og skipan sæta á lista stjórnmálaflokkanna þannig að réttlátt geti talist.
Jafnréttisþing: Fortíð - Nútíð - Framtíð, 2003
Ráðstefnan var haldin í Ketilshúsinu 7. apríl 2003. Páll Pétursson félagsmálaráðherra setti þingið. Anna Havnör, formaður norræns vinnuhóps um kynjaða hagstjórn hélt erindið Gender Budgeting at the Nordic and EU Levels. Jörgen Lorentzen, sérfræðingur í karlarannsóknum hélt erindið Karlar og jafnrétti kynjanna. Því næst héldu Hólmfríður Anna Baldursdóttir og Kristbjörg Kristjánsdóttir, fulltrúar Bríet, félag ungar femínista, erindi um sýn ungra femínista á jafnrétti kynjanna.
Eftir kaffihlé tók við vinna í vinnustofum en þær voru þrjár: Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða í alla stefnumótun. Vinnumarkaðurinn - laun, áhrif, jafnréttisstefna sveitarfélaga, byggðaþróun. Samskipti kynjanna - fjölskylduábyrgð, samvinna kynjanna, kynbundið ofbeldi, klámvæðing. Á eftir voru helstu niðurstöður kynntar. Eftir mat voru svo pallborðsumræður sem hófst á fyrirlestri Kristínar Ástgeirsdóttur, sagnfræðingi og framkvæmdastjóra Mannréttindaskrifstofu Íslands. Eftir það fékk hver flokkur að svara erindi hennar og svo voru opnaðar umræður. Eftir að niðurstöður ráðstefnunnar voru kyntar var menningardagskrá í Samkomuhúsinu í boði Akureyrarbæjar.
Kynbundinn launamunur, 2002
Malþing um kynbundinn launamun var haldið 28. febrúar 2002 á vegum félagsmálaráðuneytisins, Jafnréttisráðs, Jafnréttisstofu og Vinnumálastofnunar. Dagskráin hófst á ávarpi félagsmálaráðherra Páls Péturssonar. Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir sérfræðingur Baugs hélt erindið Ímyndir og raunveruleiki, um könnun meðal starfsfólks Baugs og vinnu að gerð jafnréttisáætlunar fyrirtækisins í kjölfarið. Næst fjallaði Kjartan Ólafsson frá Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri um Svæðisbundinn launamun. Hvað er til ráða? En hann útskýrði af hverju launamunur kynja er meiri á landsbyggð en í höfuðborg og hvernig megi bæta úr.
Sjálfstraust og sjálfsstyrkur hét erindi Öldu Sigurðardóttur, fræðslustjóri Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, um aðferðir til að ýta undir sjálfsöryggi kvenna. Valgerður Magnúsdóttir starfsmaður Fjölskylduráðs, ræddi um stöðu karla og kvenna í átökum fjölskyldulífs og atvinnulífs í erindi sínu Rauðu strikin í fjölskyldulífinu. Að lokum fjallaði Svali H. Björgvinsson ráðgjafi hjá PricewaterhouseCoopers, um aðferðir til að innleiða starfsmat á almennum vinnumarkaði og í einstökum fyrirtækjum undir nafninu Það er hægt að minnka kynbundinn launamun!
Það læra börn... um jafnrétti í samstarfi foreldra við fæðingu barns, 2001
Jafnréttisstofa stóð árið 2001 fyrir þremur málþingum og einni ráðstefnu undir heitinu Það læra börn... jafnrétti í samstarfi foreldra við fæðingu barns. Tilefnið er átak Jafnréttisstofu til kynningar á fæðingar- og foreldraorlofslögum nr. 95/2000 sem samþykkt voru frá Alþingi í maí 2000. Í þeim felst m.a. aukinn réttur feðra til fæðingarorlofs en það ákvæði hefur vakið mikla athygli hérlendis sem erlendis enda snertir það jafnrétti kynjanna, jafnt í einkalífi sem atvinnu.
Með málþingunum og ráðstefnunni hefur tekist að safna miklu efni frá sérfræðingum og foreldrum en jafnfram hafa vaknað margar spurningar sem einungis verður unnt að svara með rannsóknum á áhrifum laganna á hina ýmsu þætti.
Í 6. tölublaði VERU 2001 er gerð ítarleg og góð grein fyrir málþingunum og ráðstefnunni. Desemberblað Verslunarmannafélags Hafnarfjarðar er einnig að miklu leyti helgað umfjöllun um fæðingar- og foreldraorlofsmál.