Í heyranda hljóði Dagskrá Jafnréttisstofu og RIKK 25. nóvember 2008 Í Iðnó kl. 13-16 Í heyranda hljóði er opinn fundur með sérfræðingum sem vinna gegn kynbundnu ofbeldi. Hér er ekki um málþing að ræða heldur munu sérfræðingarnir sitja fyrir svörum. Fundurinn fer því fram í nokkurskonar samtali sérfræðinga og fundargesta. Þetta er gert að erlendri fyrirmynd en á ensku er þetta fyrirkomulag kallað hearing sem hefur verið talin öflug leið til þess að fá fram staðreyndir og varpa ljósi á stöðu mála. Fundurinn er hluti af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi og er haldinn á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gegn konum. Pallborð með fulltrúum félagasamtaka: Andrés Ragnarsson annar sálfræðingur verkefnisins Karlar til Ábyrgðar Eyrún Jónsdóttir verkefnisstjóri Neyðarmóttöku, slysa- og bráðadeild LSH Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf Hlusta á pallborðið:Kaffi Pallborð með fulltrúum ríkisins: Björgvin Björgvinsson yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu Hildur Jónsdóttir jafnréttisfulltrúi félags- og tryggingamálaráðuneytis Hrefna Friðriksdóttir lögfræðingur Barnaverndarstofu Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri Dóms- og kirkjumálaráðuneytis Hlusta á pallboðið:Fundarstjóri: Irma Erlingsdóttir forstöðumaður Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum Samantekt: Hugrún R. Hjaltadóttir frá Jafnréttisstofu Á fundinum verða einnig undirbúnir spyrjendur: Arnar Gíslason, Jafnréttisfulltrúi HÍ og meðlimur karlahópi Femínistafélags Íslands Brynhildur Flóvenz, lektor við lagadeild H.Í. Hrund Gunnsteinsdóttir, ráðgjafi
Í 20. grein laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 kveður á um að starf sem laust er til umsóknar skulu standa opin jafnt ...