Námskeið

Námskeið: Jafnrétti og mismunun á vinnumarkaði.
Staðsetning: Staðarnámskeið
Tímasetning: Eftir samkomulagi
Markhópur: Allt starfsfólk og stjórnendur vinnustaða.
Verð: 150.000.-
Leiðbeinendur: Sérfræðingar Jafnréttisstofu
Lengd: 1,5 klst.
Skráning: Vinnustaðir geta pantað fræðsluna með því að senda erindi á jafnretti@jafnretti.is
Námskeiðslýsing: Á námskeiðinu er fjallað um jafnrétti og mismunun á vinnumarkaði. Farið er yfir skyldur atvinnurekenda og réttindi starfsfólks samkvæmt jafnréttislögum. Þá er fjallað um uppsprettu mismununar, afleiðingar og hvert er hægt leita vegna mismununar. Námskeiðið er einnig til á ensku.

 

Námskeið: Inngilding og samþætting – fyrir sveitarfélög
Staðsetning: Staðarnámskeið
Tímasetning: Eftir samkomulagi
Markhópur: Stjórnendur og kjörnir fulltrúar
Verð: 150.000.-
Leiðbeinendur: Sérfræðingar Jafnréttisstofu
Lengd: 2,5 klst.
Skráning: Sveitarfélög geta pantað fræðsluna með því að senda erindi á jafnretti@jafnretti.is
Námskeiðslýsing: Á námskeiðinu er fjallað um inngildingu og samþættingu kynja- og mannréttindasjónarmiða hjá sveitarfélögum. Farið er yfir skyldur sveitarfélaga, helstu áskoranir og hvaða skilyrði þurfa vera til staðar til árangri. Sveitarfélög hafa ríkar skyldur til samþætta kynja- og jafnréttissjónarmið; í starfsmannamálum, við úthlutun fjármagns og við veitingu á þnustu. Sveitarfélög sem stjórnvald eru í mikilli nálægð við íbúana og eru því í góðri stöðu til uppfylla skyldur nar sem ná yfir tt svið, allt frá mannai til skólastarfs, frístundaheimila og íþrótta og æskulýðsstarfs.

 

Námskeið: KÁ – vitinn fyrir vinnustaði, fræðsla gegn kynferðislegri áreitni
Staðsetning: Staðarnámskeið
Tímasetning: Eftir samkomulagi
Markhópur: Allt starfsfólk og stjórnendur vinnustaða.
Verð: 150.000.-
Leiðbeinendur: Sérfræðingar Jafnréttisstofu
Lengd: 1 klst.
Skráning: Vinnustaðir geta pantað fræðsluna með því að senda erindi á jafnretti@jafnretti.is
Námskeiðslýsing: Markmið fræðslunnar er að starfsfólk og stjórnendur þekki birtingarmyndir og afleiðingar kynferðislegrar áreitni og fái verkfæri til að vinna gegn slíkri hegðun. Lögð er áhersla á aukna vitund og kynntar eru leiðir sem vinnustaðir geta nýtt sér til að búa til betra starfsumhverfi og opnari umræðu um málefnið. Sérstök áhersla er einnig lögð á ábyrgð stjórnenda og mikilvægi góðrar vinnustaðamenningar. Námskeiðið er einnig til á ensku.

Samkvæmt jafnréttislögum eiga vinnustaðir að gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni og kynferðislega áreitni. Ká-vitinn er ein leið til að uppfylla þau skilyrði laganna.