- Samfélag og einstaklingar
- Vinnumarkaður
- Þjónustugátt
Hvað er jafnlaunavottun?
Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Jafnlaunavottun var lögfest í júní 2017. Samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna skal jafnlaunavottun byggjast á jafnlaunastaðlinum ÍST 85. Með innleiðingu hans geta fyrirtæki og stofnanir komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun. Jafnlaunastaðalinn ÍST 85 er hægt að nálgast hjá Staðlaráði Íslands.
Jafnlaunastaðallinn er stjórnunarstaðall fyrir jafnlaunakerfi, á grundvelli hans geta fyrirtæki og stofnanir fengið jafnlaunavottun. Staðallinn nýtist öllum fyrirtækjum og stofnunum óháð stærð, starfsemi, hlutverki og kynjahlutfalli. Hann tryggir fagleg vinnubrögð sem fyrirbyggja beina og óbeina mismunun vegna kyns.
Faggiltur vottunaraðili metur hvort öll skilyrði staðalsins hafi verið uppfyllt og séu þau uppfyllt veitir hann viðkomandi fyrirtæki eða stofnun jafnlaunavottun.
Fjöldi starfsfólks að jafnaði á ársgrundvelli |
Tímamörk |
250 eða fleiri |
31. desember 2019 |
150-249 |
31. desember 2020 |
90-149 |
31. desember 2021 |
25-89 |
31. desember 2022 |
Opinberar stofnanir, sjóðir og fyrirtæki sem eru að hálfu eða meirihluta í eigu ríkisins og þar sem 25 eða fleiri starfsmenn starfa að jafnaði á ársgrundvelli skulu hafa öðlast vottun eigi síðar 31. desember 2019.