- Samfélag og einstaklingar
- Vinnumarkaður
- Þjónustugátt
Kvikmyndir eftir karla eru í miklum meirihluta þeirra kvikmynda sem teknar eru til sýninga á Íslandi. Kvenréttindafélag Íslands og Stockholms feministiska filmfestival hafa unnið rannsókn á kvikmyndum sem teknar voru til sýningar í íslenskum kvikmyndahúsum og á RÚV árið 2016. Niðurstöðurnar eru sláandi.
Konur leikstýrðu aðeins 7% af kvikmyndum sem teknar voru til sýninga í íslenskum kvikmyndahúsum 2016. Sama kynjahlutfall er á kvikmyndum sem sjónvarpað var í RÚV 2016, konur leikstýrðu aðeins 7% kvikmynda sem þar voru sýndar.Það að fólk hafi aðallega möguleika til að kynnast reynslu og sögu karla í kvikmyndum hefur slæm áhrif á kynjajafnrétti í samfélaginu.
„Kvikmyndir hafa áhrif á það hvernig fólk sér sig sjálft sig heiminn. Kvikmyndir og sjónvarpsefni á að endurspegla ólíka reynsluheima og brjóta upp einhæfar hugmyndir um karla og konur,“ segir Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands. „Sögurnar sem birtast á hvíta tjaldinu á Íslandi eru sögur karla. Hvar eru kvikmyndirnar sem konur segja, sem segja frá reynslu kvenna?“
Föstudaginn 24. febrúar bjóða Kvenréttindafélag Íslands, WIFT á Íslandi, Stockholms feministiska filmfestival ásamt Stockfish Film Festival til samræðna um kynjabilið í kvikmyndaiðnaðinum undir yfirskriftinni „Hvað er svona merkilegt við það? Kynjabilið á hvíta tjaldinu“.
Pallborðsumræðurnar hefjast kl. 17 í Bíó Paradís og við borðið sitja Ása Baldursdóttir dagskrár- og kynningarstjóri Bíó Paradísar, Dögg Mósesdóttir formaður WIFT á Íslandi, Hlín Jóhannesdóttir kvikmyndaframleiðandi, Margrét Örnólfsdóttir formaður Félags leikskálda og handritshöfunda og Laufey Guðjónsdóttir forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Þorsteinn Víglundsson jafnréttisráðherra og Fríða Rós Valdimarsdóttir formaður Kvenréttindafélags Íslands ávarpa fundinn. Brynhildur Björnsdóttir stýrir fundi.
Aðgangur er ókeypis og opinn öllum. Lesið meira hér.
Um rannsóknina:
Rannsóknin náði til allra kvikmynda sem teknar voru til sýningar í íslenskum kvikmyndahúsum árið 2016, sem og kvikmyndir sýndar í kvikmyndahúsum í Danmörku 2015 og í kvikmyndahúsum og á Netflix í Svíþjóð árið 2016. Kynjahlutfallið er langverst á Íslandi.
Ísland