Ráðstefna um meðferð kynferðisbrota

Innanríkisráðuneyti, Lagadeild Háskóla Íslands og Rannsóknarstofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni efna í samvinnu við Evrópuráðið til ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu þann 20. janúar nk. Málstofan fer fram í Skriðu, Menntavísindasviði Háskóla Íslands við Stakkahlíð í Reykjavík og stendur frá klukkan 10 til 18. Á ráðstefnunni verða bæði erlendir og innlendir fyrirlesarar og leitast verður við að leiða saman sjónarmið fræðasamfélagsins, réttarvörslukerfisins og frjálsra félagasamtaka sem fjalla um málaflokkinn.Ráðstefnan verður í þremur hlutum.

Í fyrsta hluta verður fjallað um kynferðisbrot gegn börnum í tengslum við sáttmála Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðislegri misnotkun. Íslensk stjórnvöld undirrituðu sáttmálann 4. febrúar 2008 og fullgilding stendur nú fyrir dyrum. Í þessu samhengi verður sérstaklega fjallað um reglur Evrópuráðsins um barnvænt réttarumhverfi en þær voru útbúnar í tengslum við sáttmálann.

Í öðrum hluta verður fjallað um meðferð nauðgunarmála í réttarkerfinu út frá þverfaglegu sjónarhorni. Er þessi hluti sjálfstætt framhald af viðamiklu samráði sem innanríkisráðuneytið hefur staðið fyrir um meðferð nauðgunarmála.

Í þriðja hluta ráðstefnunnar verður boðið upp á þrjár málstofur með aðkomu fræðimanna, lögreglu, saksóknara, dómara, lögmanna og frjálsra félagasamtaka. Í þeirri fyrstu verður fjallað um samspil barnaverndarkerfisins og refsivörslukerfisins; í annarri verður rætt um rannsóknir og ákærur í nauðgunarmálum og í þeirri þriðju verður fjallað um trúverðugleika og sönnunarmat.

Ráðstefnan fer fram á ensku og íslensku. Táknmálstúlkun stendur til boða en hana þarf að panta í síðasta lagi 13. janúar.

Ráðstefnan er öllum opin en þátttakendur eru beðnir um að skrá sig til þátttöku og tilgreina áhuga á málstofu með því að senda póst á netfangið sigurros.eliasdottir@irr.is 


Dagskrá:

10:00-11:30 Evrópuráðið og kynferðisbrot gegn börnum:

Fundarstjóri: Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytis.

Ávarp innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar.

Eric Ruell, dómari vid Tribunal de Grand Instance de Meaux, Frakklandi, og forseti Eftirlitsnefndar sáttmála Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðislegri misnotkun: The Council of Europe action to tackle sexual violence against children.

Ksenja Turkovic, prófessor í refsirétti við Lagaháskólans í Zagreb, og sérfræðingur Evrópuráðsins: Making child friendly justice a reality: They key elements for the professionals.

Róbert R. Spanó, prófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands:
Tillögur að lagabreytingum vegna innleiðingar Evrópuráðssamnings um varnir gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðislegri misnotkun barna.

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu: The implementation of the CoE instruments with regard to child sexual abuse in Iceland.


Umræður


11:30-12:00: Léttur hádegisverður (standandi)


12:00-14:30: Meðferð nauðgunarmála í réttarkerfinu

Fundarstjóri: Karl Blöndal, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins.

Liz Kelly, prófessor í kynbundnu ofbeldi við London Metropolitan
University: Gaps and Chasms: Understanding why so many rape cases never result in a conviction or justice for victims.

Holly Johnson, prófessor í afbrotafræði við Háskólann í Ottawa: Limits of a criminal justice response to sexual violence.

Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari: Þróun nauðgunarhugtaksins og refsinga fyrir nauðgun - hlutverk ákæruvaldsins.

Heidi Heggdal, dómari við Oslo Tingrett: Sexcrimes, court procedure and punishment - with focus on effort to improve the rights of the victims.

Umræður


14:30-14:45: Kaffihlé


14:45-17:00: Málstofur:


Málstofa 1: Samspil barnaverndarkerfisins og refsivörslukerfisins

Málstofustjóri: Regína Jensdóttir, forstöðumaður barnaréttarskrifstofu Evrópuráðsins

Hrefna Friðriksdóttir, dósent við lagadeild HÍ og formaður stjórnar RÁS

Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum

Ólafur Örn Bragason, sálfræðingur

Ólöf Ásta Farestveit, forstöðumaður Barnahúss


Málstofa 2: Rannsókn nauðgunarmála ? hvað leiðir til ákæru?

Málstofustjóri: Helgi Gunnlaugsson, prófessor við Háskóla Íslands

Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrota­deildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu

Eyrún Jónsdóttir, Neyðarmóttöku

Inga Dóra Pétursdóttir, UN WOMEN

Jón Þór Ólason, hdl. og lektor við lagadeild HÍ

Kolbrún Benediktsdóttir, saksóknari

Þorbjörg I. Jónsdóttir, hrl.


Málstofa 3: Trúverðugleiki og sönnunarmat

Málstofustjóri: Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra

Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl.

Jón Friðrik Sigurðsson, yfirsálfræðingur á geðsviði Landspítalans og prófessor

Símon Sigvaldason, héraðsdómari

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, starfskona Stígamóta

Svala Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR



17:00-18:00: Samantekt og slit: Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra (léttar veitingar).