Umsækjendur um starf framkvæmdastjóra

Sex umsækjendur eru um embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu sem auglýst var um miðjan júní en umsóknarfrestur rann út 1. ágúst.

Umsækjendur um embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu eru í stafrófsröð:

Arnrún Halla Arnórsdóttir, aðjúnkt
Bryndís Elfa Valdemarsdóttir, sérfræðingur
Elinóra Guðmundsdóttir, fjölmiðlafræðingur
Jón Fannar Kolbeinsson, lögfræðingur
Marcin Zembrowski, viðskiptafræðingur
Martha Lilja Olsen, skrifstofustjóri