Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum 26. september sl. aðgerðaáætlun vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis sem tekur til áranna 2006 til 2011.
Gerð aðgerðaáætlunarinnar byggði á tillögu félagsmálaráðherra og dómsmálaráðherra frá október 2005 um að hafin yrði vinna við gerð aðgerðaáætlunar vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis gegn konum og börnum. Áætlunin var unnin á vettvangi samráðsnefndar félagsmálaráðuneytis, dóms- og kirkjumálaráðuneytis, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Við gerð áætlunarinnar var meðal annars höfð til hliðsjónar drög frjálsra félagasamtaka að aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi sem hafði verið send einstökum fagráðherrum í apríl 2005.
Meginmarkmið aðgerðaáætlunarinnar er að vinna gegn ofbeldi á heimilum og kynferðislegu ofbeldi sem beinist að konum og börnum sem og að bæta aðbúnað þeirra er orðið hafa fyrir ofbeldi eða eru í áhættuhópi hvað þetta varðar.
Aðgerðaáætlunin skiptist í tvo hluta:
- Aðgerðir vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis gegn börnum.
- Aðgerðir vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis gegn konum.
Í hvorum hluta fyrir sig eru eftirfarandi markmið höfð að leiðarljósi:
- Auka fyrirbyggjandi aðgerðir sem stuðla að opinni umræðu um ofbeldi gegn börnum og kynbundnu ofbeldi og viðhorfsbreytingum í þjóðfélaginu.
- Styrkja starfsfólk stofnana í því að sjá einkenni ofbeldis hjá börnum og kynbundins ofbeldis og koma þolendum til aðstoðar.
- Tryggja einstaklingum sem eru þolendur ofbeldis á heimili eða kynferðislegs ofbeldis viðeigandi aðstoð.
- Rjúfa vítahring ofbeldis með því að styrkja meðferðaúrræði fyrir gerendur.
Um er að ræða efnismikla aðgerðaáætlun sem felur í sér 37 aðgerðir. Hverri aðgerð er lýst sérstaklega ásamt tilgangi hennar. Einstökum ráðuneytum hefur verið falin ábyrgð á framkvæmd sérhverrar aðgerðar ásamt því að settur er fram tiltekinn tímarammi um framkvæmdina.
Áætlunin er aðgegnileg hér.