- Samfélag og einstaklingar
- Vinnumarkaður
- Þjónustugátt
KFRÍ hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun:
Kvenréttindafélag Íslands varar við svokallaðri kynfæragötun" sem hefur færst í vöxt meðal ungra kvenna að undanförnu. Ætla má að klámvæðing samfélagsins sé rót þessarar auknu eftirspurnar. Klámvæðingin hefur síast inn í vitund kvenna jafnt sem karla og kemur t.d. glögglega í ljós í poppmenningunni og í auglýsingum. Klámvæðingin stuðlar að normaliseringu" kláms og afleiðingum þess, s.s. kaupum á vændi, mansali, o.s.frv. Kynfæragötun getur auk þess haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar fyrir konur. Kvenréttindafélag Íslands skorar á heilbrigðisyfirvöld að vera vel á verði, bæði hvað varðar afleiðingar þessara aðgerða svo og leyfisveitingar til handa þeim er framkvæma þær. Þykir félaginu ástæða til þess að hvetja yfirvöld til að gera úttekt á umfangi og eðli þessara aðgerða.
Nánar upplýsingar um KRFÍ er að finna á heimasíðu þeirra.