Jafnréttissjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

Jafnréttissjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis. Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða veittir styrkir til rannsókna sem tengjast jafnréttismálum.Gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi 10 milljónir króna til ráðstöfunar fyrir hvert starfsár og að styrkir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm.
Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið.

Umsóknarfrestur er til 1. september 2012 en úthlutað verður úr sjóðnum 24. október 2012.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu forsætisráðuneytisins.