- Samfélag og einstaklingar
- Vinnumarkaður
- Þjónustugátt
Í samræmi við nýsamþykkt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla boða félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð til jafnréttisþings 16. janúar næstkomandi að Hótel Nordica frá klukkan 9 til 17. Á þinginu verður fjallað um fjölmargar hliðar jafnréttisbaráttunnar, svo sem launajafnrétti kynjanna, kynbundið ofbeldi, jafnrétti í atvinnulífi, karla og jafnrétti og jafnréttisstarf í skólum. Auk þess verða drög að framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum kynnt á jafnréttisþinginu, en tilgangur þess er að gefa almenningi og fulltrúum stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka kost á að skila inn hugmyndum og ábendingum vegna framkvæmdaáætlunarinnar.
Þingið verður öllum opið, en samkvæmt lögum skal sérstaklega boða til þess alþingismenn, fulltrúa stofnana ríkis og sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðar og fulltrúa frjálsra félagasamtaka sem hafa jafnréttismál á stefnuskrá sinni.
Þeim aðilum sem hafa verið að vinna að upplýsinga- eða kynningarefni sem fjallar um stöðu kvenna og karla í samfélaginu er boðið að hafa aðstöðu þar sem hægt er að kynna efnið á þinginu fyrir utan ráðstefnusalinn. Þeir sem hafa áhuga á sýna upplýsinga- og kynningarefni eru beðnir um að hafa samband við Lindu Rós Alfreðsdóttur í gegnum netfangið linda.ros.alfredsdottir@fel.stjr.is.