- Samfélag og einstaklingar
- Vinnumarkaður
- Þjónustugátt
Í dag tekur Katrín Björg Ríkarðsdóttir formlega við starfi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Katrín Björg lauk M.Ed gráðu í menntunarfræðum með áherslu á kynjajafnrétti frá Háskólanum á Akureyri árið 2011. Áður hafði hún lokið menntun í uppeldis- og kennslufræðum frá sama skóla árið 1996 og BA prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1992.
Katrín hefur frá árinu 2014 verið aðstoðarmaður bæjarstjóra á Akureyri. Árin 2006 – 2014 var hún framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar Akureyrar, 2003 – 2006 var hún jafnréttisráðgjafi Akureyrarbæjar. Árin 2000 – 2003 starfaði hún sem sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu.
Starfsfólk Jafnréttisstofu býður Katrínu hjartanlega velkomna til starfa.