- Samfélag og einstaklingar
- Vinnumarkaður
- Þjónustugátt
Vitundarvakningin Meinlaust? í samstarfi við Barnaheill er hafin. Henni er ætlað að vekja athygli á birtingarmyndum öráreitni sem börn verða fyrir í samfélaginu og fá fólk til að opna augun fyrir afleiðingunum.
Í vitundarvakningunni eru raunverulegar frásagnir frá börnum endursagðar í formi myndasagna.
Börn upplifa oft að þau hafi ekki rödd, að horft sé fram hjá þeim og þeim sagt hvernig þau eigi að vera eða ekki vera. Myndirnar í Meinlaust draga fram þessa birtingarmynd, fullorðnir sjást sem skipandi og ráðandi skuggar meðan börnin hugsa og rödd þeirra er þögul.
Öráreitni er hugtak sem notað er yfir hversdagslegar athafnir, athugasemdir eða umhverfisþætti sem eru niðrandi eða niðurlægjandi fyrir fólk sem tilheyrir jaðarsettum hópum. Hver athöfn, umhverfisþáttur eða athugasemd er ef til vill ekki stórvægileg ein og sér en þegar jaðarsett fólk finnur fyrir slíku reglulega, jafnvel daglega, eykur það álagið sem það verður fyrir samfélagsstöðu sinnar vegna og gerir það jaðarstöðuna áþreifanlega.
Öráreitni er jafnvel stundum ætlað sem hrós og eru þau sem láta slíkt út úr sér jafnvel ómeðvituð um afleiðingarnar. Þess vegna getur verið erfitt að koma auga á öráreitni og jafnvel erfiðara að benda gerendum á að hegðun þeirra hafi skaðleg áhrif.
Vitundarvakningin fer fram á samfélagsmiðlum þar sem fólk er hvatt til að taka þátt í umræðunni og deila efninu undir myllumerkinu #meinlaust eða með því að merkja @meinlaust.
Það breytist ekkert ef við lokum augunum fyrir öráreitni. Opnum augun og stöndum saman!