- Samfélag og einstaklingar
- Vinnumarkaður
- Þjónustugátt
Fimmtudaginn 6. maí heldur Halldór Oddsson, lögfræðingur (hdl.), fyrirlestur er nefnist Óbein kynjamismunum hugtakið í evrópurétti og íslenskum rétti . Fyrirlesturinn verður haldinn í Öskju, stofu 132, kl. 12.25-13.25.
Í fyrirlestrinum mun Halldór fjalla um jafnrétti út frá skilningi lögfræðinnar en jafnréttishugtakið er jafnan skilgreint á tvo vegu, þ.e. formlegt jafnrétti annars vegar og efnislegt jafnrétti hins vegar. Viðurkenning á því að mismunun geti verið óbein jafnt sem bein fól í sér stórt framfaraskref í baráttunni fyrir efnislegu jafnrétti þar sem að dómstólum var í raun gefið leyfi til að meta raunveruleg mismununaráhrif aðgerða.Halldór mun skoða óbeina kynjamismunun í víðum skilningi þess hugtaks og fjalla sérstaklega um dæmi úr erlendri dómaframkvæmd er varða óbeina kynjamismunun og þróun hugtaksins í evrópurétti - en sú þróun hefur haft mikil áhrif hér á landi.
Jafnframt verður fjallað almennt um lög og reglur er varða efnislegt jafnrétti en á undanförnum árum hefur mikið og merkilegt fræðistarf verið unnið á vettvangi Evrópusambandsins í þeim efnum. Í því samhengi verður komið inn á mikilvægi ýmissa ýmissa félagsvísindagreina fyrir lagasmíð og dómaframkvæmd varðandi óbeina mismunun.
Öll velkomin!
Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum