- Samfélag og einstaklingar
- Vinnumarkaður
- Þjónustugátt
Jafnréttisstofa, Rótin – félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda, RIKK og fleiri aðilar standa að ráðstefnu um konur, fíkn, áföll og meðferð, hinn 1. og 2. september 2015, á Grand hóteli í Reykjavík. Á ráðstefnunni verða fyrirlesarar frá Bandaríkjunum, Svíþjóð, Grænlandi og Íslandi.Tilgangur ráðstefnunnar er að auka skilning og þekkingu á kynjafræðilegu sjónarhorni á fíkn, áföll og meðferð og á nauðsyn kynjamiðaðrar meðferðar. Ráðstefnan mun einnig koma á samvinnu norrænna fræðimanna og fagfólks sem beinir sjónum að sálfélagslegum raunveruleika kvenna og áfallareynslu þeirra í tengslum við fíkn og meðferð.
Aðalfyrirlesari er Stephanie Covington, sálfræðingur. Hún er höfundur bókarinnar A Woman’s Way through The Twelve Steps og frumkvöðull í rannsóknum og vinnu með sérstakan vanda kvenna að því er varðar fíkn. Hún mun einnig bjóða upp á vinnustofur fyrir fagfólk sem vinnur með fólki með fíknivanda. Ein vinnustofa verður haldin fyrir konur á batavegi.
Ráðstefnan er ætluð sálfræðingum, áfengis- og vímuefnaráðgjöfum, skólasálfræðingum, læknum, starfsmannastjórum, geðhjúkrunarfræðingum, starfsráðgjöfum, fjölskylduráðgjöfum, félagsráðgjöfum, iðjuþjálfum, sjúkraþjálfurum og öðru fagfólki sem vinnur með fólki með fíknivanda.
Áhugafólk um málefnið er velkomið á ráðstefnuna sem og fólk sem glímt hefur við fíknivanda.
Ráðstefnan er haldin á ensku og verða allir fyrirlestrar og vinnustofur á ensku.
Nánari upplýsingar, dagskrá og skráning má finna á heimasíðu RIKK.