- Samfélag og einstaklingar
- Vinnumarkaður
- Þjónustugátt
Félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur skipað Kristínu Ástgeirsdóttur í embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Skipun þessi er til fimm ára frá og með 1. september nk.Kristín hefur mjög fjölþætta reynslu á sviði jafnréttismála enda hefur hún starfað víða á þeim vettvangi. Hún er sagnfræðingur að mennt og fjallaði meðal annars meistararitgerð hennar um Ingibjörgu H. Bjarnason og íslenska kvennahreyfingu 1915?1930. Hún hefur gegnt starfi forstöðumanns Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands frá árinu 2005 og verið stundakennari í kynjafræðum við sama skóla frá árinu 2003. Enn fremur starfaði Kristín að málefnum kvenna á vegum utanríkisráðuneytisins og UNIFEM í Kosovo á árunum 2000?2001. Þá var Kristín alþingismaður á árunum 1991?1999.