Það er bannað að mismuna

Jafnréttisstofa hefur nýlega endurútgefið veggspjald um bann við mismunun. Veggspjaldið er gefið út á íslensku, ensku og pólsku og má nálgast hér.

Í sumar sendi Jafnréttisstofa eintök af veggspjöldunum á öllum tungumálum á rúmlega 250 fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög og skóla.

Hægt er að prenta veggspjöldin út, einnig er hægt að hafa samband á netfangið jafnretti@jafnretti.is og óska eftir eintökum á meðan birgðir endast.