Fréttir

„Að búa til bók og skúrað á eftir“

Fyrsta jafnréttistorg vetrarins í Háskólanum á Akureyri fer fram miðvikudaginn 14. október nk. Þar munu dr. Sigrún Stefánsdóttir og Valgerður Sverrisdóttir fyrrum alþingiskona og ráðherra flytja innlegg í tengslum við útgáfu bókarinnar Frú ráðherra - frásagnir kvenna á ráðherrastóli eftir Eddu Jónsdóttur og dr. Sigrúnu Stefánsdóttur. Jafnréttistorgið mun fara fram kl. 12.00, í stofu N101 Sólborg v/Norðurslóð og er öllum opið án endurgjalds.  

Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga 2015

Fljótsdalshérað boðar til landsfundar jafnréttisnefnda sveitarfélaga 8. - 9. október n.k.  Landsfundur jafnréttisnefnda er haldinn árlega og er kjörinn vettvangur fyrir fólk sem vinnur að jafnréttismálum innan sveitarfélaga til að koma saman og ræða málin, fræðast og fá góðar hugmyndir.

20 árum síðar - kynjasamþætting undir smásjánni

Hvaða árangri hefur samþætting kynjasjónarmiða (e. Gender Mainstreaming) skilað fram til þessa? Hefur innleiðing samþættingar leitt til aukins jafnréttis? Á hvaða sviðum hefur samþætting virkað og hvar ekki? Hversu vel hefur okkur tekist að nýta hugmyndafræði samþættingar og þau verkfæri sem hún hefur alið af sér? Hvaða kostir og gallar hafa komið í ljós, m.a. ef horft er til samtvinnunar (e. intersectionality) við aðrar víddir jafnréttis? Á þessu ári eru 20 ár frá því að samþætting var formfest á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og því kalla Jafnréttisnefnd HÍ og Jafnréttisstofa til fólk með reynslu og þekkingu á sviðinu til að taka púlsinn á samþættingu.

Ljósagangur og litadýrð í háskólum landsins til áminningar um jafnréttismál

Háskólar landsins standa saman að ljósagjörningi í hádeginu í dag, mánudaginn 5. október til að undirstrika mikilvægi mannréttinda og umræðu um jafnréttismál. Dagurinn markar jafnframt upphaf jafnréttisdaga og fræðsluviðburða um jafnréttismál sem fara fram í skólunum sjö. Þetta er í fyrsta sinn sem skólarnir vinna saman að gjörningi tengdum jafnréttismálum en viðburðurinn hefur einnig skírskotun í Alþjóðlegt ár ljóssins á vegum Sameinuðu þjóðanna.

Norrænt samstarf um dagatal á vefnum

Glöggir lesendur heimasíðu Jafnréttisstofu hafa tekið eftir því að dagatal stofunnar hefur verið að taka breytingum. Ástæðan er sú að Jafnréttisstofa hefur tekið upp samstarf við norrænt dagatal til að kynna atburði á sviði jafnréttis kynjanna. Um er að ræða vefgátt þar sem atburðir á dagatal Jafnréttisstofu sjást einnig á norræna dagatalinu GenderKalenderN. Jafnréttisstofa hvetur alla sem eru að skipuleggja atburði sem tengjast jafnrétti kynja til að hafa samband og auglýsa viðburði sína á þessum nýja vettvangi.