Heimsfaraldur Covid-19 hefur haft gríðarleg áhrif á fólk um allan heim og afhjúpað ýmsa veikleika, ekki síst hefur mismunandi veruleiki kynjanna afhjúpast. Þegar faraldurinn skall á okkur í upphafi ársins var aukið ofbeldi eflaust ekki það fyrsta sem fólki datt í hug. Staðreyndin er hins vegar sú að víða um heim hefur mikil aukning orðið á heimilisofbeldi. Ísland er þar svo sannarlega ekki undanskilið, því miður.
02.12.2020
Ofbeldi í nánum samböndum er algengasta birtingarmynd kynbundins ofbeldis á heimsvísu. Mikil og þörf umræða hefur farið fram undanfarið um vaxandi tíðni og alvarleika ofbeldis í nánum samböndum á Íslandi sem og annarsstaðar. Þolendur glíma oft við fjölþættar, neikvæðar afleiðingar ofbeldisins sem hefur neikvæð áhrif á lífsgæði þeirra og heilsufar jafnvel til æviloka. Hér á landi vinna ýmsir aðilar, samtök og stofnanir ómetanlegt starf við að styðja þolendur ofbeldis til betra lífs og virðist sú vinna sem betur fer vera sífellt meira metin af samfélaginu, að minnsta kosti nú á Covid tímum.
26.11.2020
Komin er út skýrsla um hæfnisramma fyrir fræðslu í tengslum við verkefnið „Konur gára vatnið - Eflum leiðtogahæfni kvenna“. Verkefnið hófst í október 2019. Þrátt fyrir ýmis jákvæð skref í jafnréttisátt er enn töluvert í land þegar kemur að launajafnrétti kynjanna í Evrópu. Markmið þessa verkefnis er að vinna að auknum áhrifum kvenna í gegnum valdeflandi námskeið þar sem megin áhersla er lögð á leiðtogahæfni, sjálfsþekkingu og sjálfstraust. Verkefnið miðar að aukinni þátttöku kvenna í forystuhlutverkum á vinnumarkaði og auknum sýnileika kvenna í fjölbreyttum leiðtogahlutverkum sem styður við afnám kynjabils í launum og áhrifum.
11.11.2020
Stéttarfélagið Sameyki tilkynnti í gær, 14. október, um valið á Stofnun ársins 2020 en titlana Stofnun ársins og Fyrirmyndarstofnun hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr að mati starfsmanna í könnun Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu.
Jafnréttisstofa lenti í 1. sæti og er þvi Stofnun ársins í flokki minni stofnana (færri en 20 starfsmenn) og hefur því bætt sig um tvö sæti síðan 2019 þegar hún varð í 3. sæti.
15.10.2020
Komin er út skýrsla Jafnréttisstofu um nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneytanna fyrir starfsárin 2018-2019. Í skýrslunni er að finna greiningu á skiptingu kynjanna í nefndum, stjórnum og ráðum á starfsárunum auk þess sem farið er yfir þróun síðustu ára. Árið 2008 var leiddur í lög kynjakvóti í nefndum, stjórnum og ráðum á vegum ríkisins og hefur Jafnréttisstofa eftirlit með framkvæmd hans.
28.09.2020
Árlegur landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga sem fram fór 15. september var með óvenjulegu sniði þetta árið sökum aðstæðna sem öllum eru kunnar. Fundurinn var haldinn í samstarfi Akureyrarbæjar, Jafnréttisstofu og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Áætlað hafði verið að halda fundinn á Akureyri en hann var í staðinn alfarið netfundur og sá Símenntun Háskólans á Akureyri um tæknilega framkvæmd.
17.09.2020
Bæklingurinn Réttur þinn - Mikilvægar upplýsingar fyrir innflytjendur á Íslandi er gefinn út af Jafnréttisstofu.
Í bæklingnum er fjallað um réttindi fólks á Íslandi þegar kemur að nánum samböndum og samskiptum, til dæmis hjónaband, sambúð, skilnað og sambúðarslit, þungun, mæðravernd, þungunarrof, forsjá barna, umgengnisrétt, ofbeldi í nánum samböndum, mansal, vændi, kærur til lögreglu, gjafsókn og dvalarleyfi
14.09.2020
Akureyrarbær og Jafnréttisstofa boða til landsfundar um jafnréttismál sveitarfélaga þriðjudaginn 15. september milli kl. 10 og 12, en að þessu sinni verður haldinn fjarfundur í ljósi aðstæðna í samfélaginu.
08.09.2020
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála stendur fyrir námskeiðinu Jafnréttislögin og helstu áhrif þeirra í daglegu lífi. Námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 17. september 2020 kl. 9:00-12:30 í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð en einnig stendur til boða að taka námskeiðið í fjarnámi.
08.09.2020
Forsætisráðuneyti hefur sett tvenn ný lagafrumvörp í samráðsgátt stjórnvalda.
Fjórir starfshópar störfuðu í sl. vetur við endurskoðun laga nr. 10/2008.
Umsagnarfrestur er til 7. ágúst 2020.
10.07.2020