Í gær flutti Ingólfur V. Gíslason erindið Eru karlar hræddir við bleika gúmmíhanska? við góðar undirtektir en um 65 manns mætti á fundinn. Glærurnar ásamt fjölmiðlaumfjöllun um erindið eru nú aðgengileg á heimasíðunni.
29.03.2007
Samkvæmt fréttum frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gegna konur þrem af hverjum fjórum nýjum störfum í Evrópu. Þrátt fyrir þetta ríkir enn mikil munur á milli kynjanna á vinnumarkaði. Aukin menntun kvenna hefur ekki enn skilað sér að fullu, því enn vinna þær minna og fá minna borgað en karlar. Þetta er eitt af því sem fram kemur í skýrslu framkvæmdastjórnarinnar um jafnrétti kvenna og karla á árinu 2007.
28.03.2007
Landsfundur jafnréttisnefnda verður haldinn dagana 4. og 5. júní nk. í Fjarðabyggð. Landsfundurinn er opinn fulltrúum í jafnréttisnefndum sveitarfélaga, en einnig eru velkomnir á fundinn fulltrúar þeirra sveitarstjórna sem ekki hafa skipað jafnréttisnefndir.
27.03.2007
Í rannsókninni ,,Ungmenni, kynferði og klám á Norðurlöndum" hefur útbreiðslu kláms og menningarlega staða þess verið rannsakað. Verkefnið nær til alls níu kannanna um afstöðu ungs fólks og reynslu þess af klámi. 99 prósent aðspurðra drengja og 86 prósent stúlkna höfðu horft á klám einu sinni eða oftar.
27.03.2007
Fimmtudaginn 29. mars nk. mun Hlér Guðjónsson, kynna rannsóknarverkefni sitt: Þróun mælikvarða fyrir jafnréttiskennitölu á málstofu meistaranema í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst. Verkefnið er liður í þróun Jafnréttiskennitölunnar sem Rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttismála við Háskólann á Bifröst stendur að í samstarfi við Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráðuneytið, Félag kvenna í atvinnurekstri, Jafnréttisstofu og Jafnréttisráð.
27.03.2007
Jafnréttisstofa hefur síðustu ár verið þátttakandi í nokkrum samevrópskum rannsóknaverkefnum, sem beinst hafa að stöðu karla sérstaklega og hinu flókna samspili fjölskyldulífs og atvinnulífs. Á hádegisfundi þann 28. mars næstkomandi fjallar Ingólfur V. Gíslason um stöðu, viðhorf og vilja íslenskra karla eins og hún birtist í niðurstöðum þessara verkefna.
27.03.2007
Í hádegisfyrirlestraröð Rannsóknastofu í vinnuvernd, mánudaginn 26. mars kl. 12 - 13 flytur Gísli Hrafn Atlason erindi.
23.03.2007
Jafnréttisstofa birtir nú niðurstöður rannsóknar á skipun jafnréttisnefnda og gerð jafnréttisáætlana sveitarfélaga. Helstu niðurstöður eru þær að nú eru um 75% sveitarfélaga með jafnréttisnefnd eða aðra nefnd ábyrga fyrir jafnréttismálum. Þetta er mikil breyting frá fyrri könnun frá árinu 2001, þar sem einungis 30% sveitarfélaga voru með slíka nefnd. Jafnréttisstofa fagnar þessum breytingum.
19.03.2007
Menntaskólinn í Kópavogi hefur verið með jafnréttisviku dagana 12-15 mars og er aðaldagur jafnréttisvikunnar í dag. Boðið er upp á skemmtidagskrá með kynjaívafi, en á meðal skemmtiatriða er kynjagrín Steins Ármanns og innlegg frá meðlimum Botnleðju. Auk þess munu nemendur kynna verkefni tengd jafnrétti.
15.03.2007
Í nýrri skýrslu Ingólfs V. Gíslasonar er greint frá niðurstöðum rannsóknar um fæðingarorlof feðra hér á landi og þeim samfélagslegu áhrifum sem það hefur haft. Þátttaka feðra í fæðingarorlofi nemur um 90 prósentum og vafalaust eru fleiri feður en nokkru sinni fyrr virkir við umönnun barna sinna.
09.03.2007