Í dag eru liðin 30 ár frá því að Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti Íslands. Hún varð þar með fyrsta konan í heiminum til að verða forseti kjörinn í lýðræðislegum kosningum. Kosningabaráttan vikurnar á undan var fjörug og um margt merkileg. Þrír karlar og ein kona voru í framboði og var það í fyrsta sinn sem kona bauð sig fram hér á landi. Ýmsum rökum var beitt gegn Vigdísi svo sem þau að hún væri einstæð móðir, það ættu að vera hjón á Bessastöðum, hæfileikar hennar til að sinna embættinu voru dregnir í efa og þar fram eftir götunum. En nógu margir kjósendur voru á öðru máli. Vigdís sigraði og vakti það gríðarlega athygli um allan heim.
29.06.2010
Ríkislögreglustjóri og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafa lokið við gerð viðamikillar rannsóknarskýrslu á heimilisofbeldi. Á heimssíðu ríkislögreglustjóra kemur fram að rannsóknin er hluti af stærra verkefni sem hófst árið 2000 er ríkislögreglustjóri ákvað að gera rannsókn á ofbeldi, eins og það birtist í gögnum lögreglu og gögnum Landspítala háskólasjúkrahúss. Í framhaldinu var gerð áætlun um að skoða mismunandi tegundir ofbeldis og byrjað á ofbeldi gegn lögreglumönnum og birtust niðurstöður þeirrar rannsóknar í skýrslu árið 2007.
25.06.2010
Í Ráðhúsi Reykjavíkur komu saman hátt í 200 konur til að fagna kvenréttindadeginum en þar fór m.a. fram kynning á Skottunum sem eru regnhlífasamtök kvenna sem halda utan um kvennafrídaginn 24. - 25. október. Vigdís Finnbogadóttir verndari dagsins hélt erindi.
24.06.2010
Ársskýrsla Jafnréttisstofu um starfsárið 2009 er nú komin út. Í henni má finna yfirlit yfir helstu verkefni Jafnréttisstofu og þær áherslur sem lagðar voru í jafnréttismálum á umræddu tímabili. Starfsemi Jafnréttisstofu er margþætt og verkefni sem unnin voru á hennar vegum á árinu sýna það glöggt. Af þeim ber helst að nefna að haldnar voru fjórar stórar ráðstefnur í tengslum við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni, útgefin rit voru mörg þar á meðal um kynjasamþættingu og jafnréttisáætlanir og þróunarverkefnið Jafnrétti í leik- og grunnskólum sem hefur vakið mikla athygli.
23.06.2010
Jafnréttisstofu hafa á undanförnum dögum borist ábendingar og kvartanir vegna skorts á sýnileika kvenna við lýsingar á leikjum á HM í Suður Afríku. Karlar eru í aðalhlutverki leikskýrenda hérlendis og sem dæmi má nefna að allir leikskýrendur hjá Ríkissjónvarpinu eru karlar. Þegar litið er til hinna Norðurlandanna er annað uppi á teningnum t.d. hjá sænska ríkissjónvarpinu þar sem bæði karlar og konur koma fram sem leikskýrendur.
23.06.2010
Í gær, þann 20. júní voru Arna Ýrr Sigurðardóttir og Hildur Eir Bolladóttir settar í embætti presta í prestaköllunum tveimur á Akureyri en þær munu báðar hefja störf í júní.
21.06.2010
Í ár eru liðin 95 ár frá því konur öðluðust kosningarétt og kjörgengi á við karla. Þann 19. júní 1915 fengu íslenskar konur 40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til alþingis. Baráttan hafði staðið frá árinu 1885 þó fyrsta opinbera krafan um kosningarétt kvenna hafi ekki komið fram fyrr en árið 1895. Í ár eru einnig 80 ár liðin frá stofnun Kvenfélagasambands Íslands, 40 ár frá stofnun Rauðsokkuhreyfingarinnar, 30 ár frá forsetakjöri frú Vigdísar Finnbogadóttur, 20 ár frá stofnun Stígamóta, 15 ár frá samþykkt Peking-áætlunarinnar og 35 ár frá fyrsta kvennafrídeginum. Í tilefni kvenréttindadagsins í ár er boðið upp á dagskrá á Akureyri og í Reykjavík
18.06.2010
Í tilefni af komu fr. Navanethem Pillay, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna til Íslands, stendur utanríkisráðuneytið í samvinnu við Mannréttindaskrifstofu Íslands og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands fyrir opnum fundi um eflingu og verndun mannréttinda. Fundurinn er haldinn í Þjóðmenningarhúsinu og hefst kl. 16:00.
16.06.2010
Forsenda markvissrar jafnréttisfræðslu og jafnréttisstarfs í skólum eru vel menntaðir kennarar á sviði jafnréttis og kynjafræði. Á síðasta skólaári bauð Jafnréttisstofa upp á fyrirlestra og námskeið í skólum með það að markmiði að efla kynjafræðilegan grunn kennara og skapa umræðu í skólunum um jafnréttismál. Áfram verður haldið næsta skólaár og í ágúst mun Jafnréttisstofa standa fyrir dagsnámskeiði í Reykjavík, Kópavogi og á Akureyri og í október verður hálfsdagsnámskeið í Garðabæ.
14.06.2010
STERK gegn mansali eru forvarnarsamtök sem vinna að því að draga úr eftirspurn eftir vændi og mansali á Íslandi með því að fræða almenning og unga karla um raunverulegt eðli vændis og vændiskaupa. Samtökin voru stofnuð þann 8. mars á þessu ári og bjóð nú upp á fræðslu og fyrirlestra fyrir hópa.
09.06.2010