Ný rannsókn Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á launum karla og kvenna sýnir að kynbundinn launamunur á heildarlaunum mælist nú 16,3% á vinnumarkaðnum í heild. Hann er meiri meðal fólks sem starfar á almennum vinnumarkaði og enn meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæði. Hjá hinu opinbera, það er ríki og sveitarfélögum, mælist ekki marktækur kynbundinn launamunur meðal starfsmanna með grunnskólamenntun og með háskólamenntun, en hjá þeim sem falla í flokkinn framhaldsskólamenntaðir mælist hann umtalsverður. Þessi könnun er sú fyrsta sem endurspeglar vinnumarkaðinn í heild sinni.
28.11.2008
Bergný Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, frá Seyðisfirði, nemi í Myndlistaskólanum á Akureyri hlaut í fyrstu verðlaun og 50.000 kr. í verðlaunafé í veggspjaldasamkeppni um kynbundið ofbeldi.
27.11.2008
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi hófst 25. nóvember og lýkur 10. desember nk. Í tilefni þess verður Jafnréttisstofa með bókmenntadagskrá á Amtsbókasafninu fimmtudaginn 27. nóvember kl. 17.15.
26.11.2008
Forsvarsmenn verkefnisins Karlar til ábyrgðar munu kynna verkefnið miðvikudaginn 26. nóv. kl. 12.00 í stofu L201 í Háskólanum á Akureyri. Einnig mun fara fram undirritun samnings um áframhaldandi samstarf við Jafnréttisstofu.
25.11.2008
Fyrstu jafnréttisviðurkenningar Stígamóta voru veittar við hátíðlega athöfn í Iðnó föstudaginn 21. nóvember í tengslum við Evrópumálstofu um kynbundið ofbeldi.
25.11.2008
Í heyranda hljóði er opinn fundur með sérfræðingum sem vinna gegn kynbundnu ofbeldi. Hér er ekki um málþing að ræða heldur munu sérfræðingarnir sitja fyrir svörum. Fundurinn fer því fram í nokkurskonar samtali sérfræðinga og fundargesta. Fundurinn fer fram í Iðnó 25. nóvember kl. 13.00-16.00.
24.11.2008
Sex þingmenn úr Framsóknarflokki, Samfylkingu og Vinstri hreyfingunni grænu framboði hafa lagt fram frumvarp um að undanþáguheimild til nektarsýninga á veitingastöðum verði felld á brott. Verði frumvarpið að lögum verða nektarsýningar í atvinnuskyni alfarið bannaðar. Einnig verður óheimilt með öllu að gera með öðrum hætti út á nekt starfsmanna eða annarra sem á staðnum eru.
21.11.2008
Stígámót og European Women´s Lobby standa fyrir málþingi föstudaginn 21. nóvember um baráttuna gegn kynferðisofbeldi í Evrópu.
21.11.2008
Tilefnið er að fagna nýsamþykktum lögum á norska þinginu um bann við kaupum á kynlífsþjónustu en Noregur er annað ríkið í heiminum sem mun gera slík kaup refsiverð.
21.11.2008
Eftir brotthvarf tveggja karlmanna af Alþingi nýverið hefur hlutur kvenna í hópi þingmanna aukist úr 33,3% í 36,5%. Tuttugu konur voru kjörnar á þing í upphafi þessa kjörtímabils, en þær eru nú 23 eða jafnmargar og þær voru árið 1999.
19.11.2008