Í nýrri samantekt Ríkislögreglustjóra um jafnréttismál, fyrir árið 2014, kemur fram að hlutfall kvenna innan lögreglunnar var 13% og hefur lítið breyst síðustu ár. Í upphafi árs 2014 var engin kona yfirlögregluþjónn en flestar voru konur meðal lögreglufulltrúa, þá 15 af 82.
30.06.2015
Þann 19. júní síðastliðinn var samþykkt á Alþingi þingsályktun um að stofnaður verði Jafnréttissjóður Íslands sem njóti framlaga af fjárlögum næstu fimm ár, 2016–2020, 100 milljónir. kr. á ári.
25.06.2015
Forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, er einn tíu þjóðarleiðtoga sem mun leiða nýtt alþjóðlegt verkefni sem kallast IMPACT 10x10x10 og er liður í HeForShe verkefni UN Women.
Verkefnið mun leiða saman tíu stjórnmálaleiðtoga, tíu alþjóðleg fyrirtæki og tíu háskólastofnanir með það að markmiði að stuðla að jafnrétti kynjanna með aukinni þátttöku karla í umræðu um jafnrétti.
24.06.2015
Ríkisstjórn Ísland samþykkti innleiðingaráætlun um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð fyrir árin 2015 til 2019, á fundi sínum þann 19. júní síðastliðinn.
Í jafnréttislögum, lögum nr. 10/2008, segir að við alla stefnumótun og áætlanagerð á vegum ráðuneyta og opinberra stofnanna skuli kynjasamþættingar gætt. Innleiðing kynjaðrar hagstjórnar og fjárlagagerðar (KHF) hófst á Íslandi árið 2009 og byggir á aðferðafræði kynjasamþættingar.
22.06.2015
Jafnréttisstofa verður lokuð frá hádegi föstudaginn 19. júní, í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna. Jafnréttisstofa hvetur landsmenn alla til að halda daginn hátíðlegan og minnir á að viðburðir eru skipulagðir víða um land í dag.
Yfirlit viðburða má finna hér
19.06.2015
Fimmtudaginn 18. júní verður kvennasöguganga á Akureyri. Í ár verður gengið í fótspor Vilhemínu Lever. Vilhelmína er þekkt fyrir að hafa greitt atkvæði í fyrstu bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri árið 1863.
Gangan hefst við Laxdalshús, Hafnarstræti 11, kl. 20.00 og endar á Minjasafninu þar sem gestum er boðið á sýninguna „Ertu tilbúin frú forseti?“ um Vigdísi Finnbogadóttur, fyrsta lýðræðislega kjörna kvenforseta í heiminum. Hanna Rósa Sveinsdóttir safnvörður á Minjasafninu leiðir gönguna.
15.06.2015
Á ráðstefnunni Fjölbreytt forysta í atvinnulífinu sem haldin var af Jafnréttisstofu í maí sl. voru tvær íslenskar rannsóknir á stjórnarháttum, viðhorfum stjórnarmanna og vali á stjórnarmönnum á tímum kynjakvóta kynntar. Jafnréttisstofa hefur nú fengið í hendur skýrslur um niðurstöður rannsóknanna sem hægt er að lesa hér að neðan.
10.06.2015
Aðgerðahópur stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti hefur kynnt niðurstöður rannsóknarverkefna hópsins. Annars vegar er um að ræða fyrstu rannsókn, sem gerð hefur verið hér á landi á kynbundnum launamun, sem tekur til vinnumarkaðarins í heild og hins vegar rannsóknarskýrslu um stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði.
04.06.2015