Fréttir

Verkakonur í fortíð og nútíð

Þann 25. október næstkomandi verða liðin 100 ár frá stofnun Verkakvennafélagsins Framsóknar. Í tilefni af 100 ára afmælinu standa Starfsgreinasambandið, Efling stéttarfélag, Alþýðusamband Íslands, Jafnréttisstofa og Kvennasögusafn Íslands fyrir ráðstefnu í Iðnó föstudaginn 10. október kl. 13:00-16:00. Yfirskrift ráðstefnunnar er Verkakonur í fortíð og nútíð. Þar verður sjónum beint að baráttu verkakvenna á síðustu öld og stöðu þeirra í dag. Boðið verður upp á áhugaverð erindi og pallborðsumræður þar sem m.a. forystukonur Verkakvennafélagsins Framsóknar líta yfir farinn veg og skoða hvað hefur áunnist í baráttunni um bætt kjör verkakvenna. 

HeForShe herferð

UN Women stendur nú fyrir alþjóðlegri herferð:  „HeForShe“  sem miðar að því að hvetja karlmenn til þátttöku í jafnréttisbaráttunni og ætlunin er að fá 1 billjón karlmenn í heiminum til að taka afstöðu með jafnrétti kynjanna.  Í yfirlýsingu samtakanna segir að kynjajafnrétti sé ekki einkamál kvenna, kynjajafnrétti snýst um mannréttindi allra og með því að taka þátt í herferðinni séu karlmenn að lýsa stuðningi sínum við afnám fordóma og alls ofbeldis gegn konum og stúlkum.  Yfirmarkmið herferðarinnar „HeForShe“ er að kynjajafnrétti verði náð árið 2030. Heimskort á síðu herferðarinnar mun sýna jákvæða afstöðu karlmanna til kynjajafnréttis en þar munu tölur frá öllum löndum birtast og því mögulegt að fylgjast með þróun mála. Frétt um herferðina má sjá hér og einnig er hægt að lesa á ávarp sem  leikkonan  Emma Watson, sérlegur sendifulltrúi UN Women  hélt í höfuðstöðvum SÞ til að ýta herferðinni úr vör. Síða átaksins

„Zero Tolerance“ Málþing um ofbeldi – 25. september

Málþing um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi verður haldið á Grand hótel Reykjavík 25. september næstkomandi. Málþingið ber heitið „Zero Tolerance“ og mun fara fram á ensku. Það eru Norræna ráðherranefndin, innanríkisráðuneytið og velferðarráðuneytið ásamt Jafnréttisstofu sem halda málþingið sem er hluti af formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2014.

Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga

Tilkynning: „Reykjavíkurborg boðar til landsfundar jafnréttisnefnda sveitarfélaga þann 18. og 19. september n.k.    Landsfundur jafnréttisnefnda er haldinn árlega og er kjörinn vettvangur fyrir fólk sem vinnur að jafnréttismálum innan sveitarfélaga til að koma saman og ræða málin, fræðast og fá góðar hugmyndir.

„Aðgengi eða áhugi? Munur á röðun og vægi frétta eftir karla og konur"

Miðvikudaginn 17. september kl. 12.00-13.00 flytur Arnhildur Hálfdánardóttir, fréttamaður, erindið „Aðgengi eða áhugi? Munur á röðun og vægi frétta eftir karla og konur“. Félagsvísindatorgið er í samstarfi við Jafnréttisstofu.  Arnhildur Hálfdánardóttir útskrifaðist með meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands síðast liðið vor. Hún starfar nú sem fréttamaður á RÚV. Arnhildur er með BA próf í mannfræði og er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri. Hennar fyrsta reynsla af fjölmiðlum var þegar hún sat í ritstjórn skólablaðs MA Munins

100 ára kosningaréttur kvenna 2015

Jafnréttisstofa hefur verið beðin um að koma á framfæri eftirfarandi, frá undirbúningsnefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna:  "Nú líður senn að merkum tímamótum í sögu og réttindabaráttu kvenna, - 100 ára afmæli kosningaréttar og kjörgengis kvenna til Alþingis á næsta ári. Án efa hafið þið þegar hafið undirbúning að viðburðum árið 2015. Á síðasta kjörtímabili samþykkti Alþingi þingsályktun um að á næsta ári, 2015, yrði haldið upp á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Megináherslan er lögð á að virkja grasrótarsamtök kvenna, jafnréttis- og stjórnmálasamtök og hvetja þau til að láta sig varða og styðja málefni kvenna og jafnrétti og efna í því skyni til atburða og verkefna til að minnast þeirra merku tímamóta sem kosningarétturinn markaði. Afmælisnefnd hóf störf haustið 2013 en fjöldi fulltrúa jafnréttis- og kvennahreyfinga kom að stefnumótun fyrir afmælið.

Starfsendurhæfing Norðurlands í heimsókn á Jafnréttisstofu

Miðvikudaginn 10. september litu góðir gestir við á Jafnréttisstofu til að kynna sér starfsemi stofunnar og fræðast um jafnrétti kynjanna. Þetta var hópur kvenna frá Starfsendurhæfingu Norðurlands ásamt Friðbjörgu Jóhönnu Sigurjónsdóttur ráðgjafa og verkefnastjóra.  Hópurinn sat fyrirlestur um staðalmyndir kynjanna þar sem þeirri spurningu var varpað upp hvort kyn skipti máli. Góðar og fjörugar umræður áttu sér stað þar sem skipst var á skoðunum eins og alltaf þegar jafnréttismál ber á góma. Heimsókninni lauk á því að horft var á myndina Mitt verk eða þitt sem fjallar um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Myndina má finna á heimasíðu Hins gullna jafnvægis www.hiðgullnajafnvægi.is ásamt fleiri gagnlegum upplýsingum.