Jafnréttisstofa, í samstarfi við Embætti landlæknis og skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar standa að málþingi þann 4. júní næstkomandi. Frummælandi er fræði- og listakonan Dr. Dana Edell. Hún fjallar um birtingarmyndir klámvæðingar og áhrif klámvæðingar á kynímynd unglinga.
Þorsteinn V. Einarsson verkefnisstjóri félagsmiðstöðvarinnar Dregyn segir frá tildrögum þess að unglingsdrengir í Grafarvogi vöktu athygli á áhrifum staðalmynda með því að bera naglalakk. Þá mun Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur og verkefnastjóri geðræktar hjá Embætti landlæknis, fjalla um áhrif staðalmynda og hvernig vinna má gegn þeim í skóla og frístundastarfi.
Sjá kynningu
21.05.2014
Á facebook síðu Landans – frétta og þjóðlífsþætti RÚV, segir frá því að síðastliðið haust hafi sérstöku jafnréttisátaki Landans verið hrundið af stað. Markmið átaksins var að jafna hlut kynjanna meðal viðmælenda en rannsóknir hafa einmitt sýnt að karlar eru um 70% þeirra sem rætt er við í fréttum og á ljósvakamiðlum.
Til að fylgjast með framgangi átaksins var notast við svokallað kynjabókhald. Hver þáttur var skoðaður með það að markmiði að viðmælendur væru jafnt karlar og konur og hver umsjónarmaður var ábyrgur fyrir sínu kynjabókhaldi. Niðurstöður vetrarins sýna að konur voru 46% viðmælenda.
20.05.2014
Síðastliðin ár hefur krafa til fjölmiðla um að vinna gegn staðalímyndum kynja og tryggja jafnan sýnileika karla og kvenna aukist til muna. Með Pekingsáttmálanum hafa ríki sameinuðu þjóðanna þegar skuldbundið sig til að vinna að jöfnum rétti og jöfnu aðgengi karla og kvenna að þjóðfélagsumræðu og fjölmiðlum.
Í ár, 2014, hóf Nordicom, Norrænt þekkingarsetur á sviði fjölmiðlarannsókna, vinnu við að auka umræðu um stöðu kynjajafnréttis í fjölmiðlum á Norðurlöndunum. Verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni og ber heitið „Nordic Gender & Media Forum“. Markmið þess er að safna upplýsingum og gögnum um stöðu jafnréttismála á sviðum kvikmynda, frétta, auglýsinga og tölvuleikja.
Á heimasíðu verkefnisins má finna upplýsingar um viðburði og fundi sem haldnir verða á árinu.
15.05.2014
Málþing verður haldið á Grand hótel Reykjavík 25. september um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi. Norræna ráðherranefndin, velferðarráðuneytið, innanríkisráðuneytið og Jafnréttisstofu efna til þess í tengslum við formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2014. Málþingsstjóri verður Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.
09.05.2014
Á þessu ári eru 40 ár liðin síðan Norðurlöndin hófu að starfa saman að jafnréttismálum. Af því tilefni verður ýmislegt gert til þess að halda uppá samstarfið. Ef þú ert á aldrinum 15-25 ára getur þú tekið þátt í stuttmyndakeppni um jafnrétti, þar sem lagt er upp með að spyrja hversu langt við erum komin í jafnréttismálum, hvaða þýðingu jafnréttismál hafa og hvað Norðurlöndin geta gert til þess að verða enn betri í jafnréttismálum. Fyrir fyrstu verðlaun í keppninni verða veittar 25.000 danskar krónur.
Nánari upplýsingar um skilyrði þátttöku er að finna á heimasíðu Norræns samstarfs
09.05.2014
Hvernig gengur þér að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf? Hjá sumum gengur ótrúlega vel að púsla þessu saman á meðan aðrir eiga í stökustu vandræðum með að láta hlutina ganga upp. Fræðslumyndbandið Mitt verk eða þitt? sýnir hvernig tvær íslenskar fjölskyldur takast á við verkefnið. Í myndbandinu segir frá rannsóknum sem sýna að þrátt fyrir aukna atvinnuþátttöku íslenskra kvenna virðist ábyrgð á heimili og börnum hvíla þyngra á þeim. Myndbandið sem er hugsað sem fræðsluefni fyrir skóla og atvinnulíf má einnig nálgast á heimasíðunni www.hiðgullnajafnvægi.is
07.05.2014
Önnur útgáfa upplýsingaritsins Þinn réttur, mikilvægar upplýsingar fyrir erlendar konur á Íslandi er komin út. Ritið er gefið út af Jafnréttisstofu í samstarfi við Mannréttindaskrifstofu Íslands og styrkt af Progress áætlun Evrópusambandsins. Útgáfan er ætluð erlendum konum á Íslandi og öðrum sem vilja fræðast um lagaleg réttindi og skyldur. Ritið er gefið út á ensku, pólsku, tælensku, spænsku, rússnesku og arabísku, ásamt íslensku.
05.05.2014
Árið 2011 samþykktu Samstarfsráðherrar Norrænu ráðherranefndarinnar (MR-SAM) að setja á stofn áætlun til að sporna gegn mansali. Áætlunin hefur meðal annars að markmiði að efla samstarf um leiðir til að greina mansal við landamæri ásamt því að standa fyrir sérstökum fræðslufundum aðila sem vinna að málaflokki mansals í Rússlandi, Eistlandi, Lettlandi og Litháen ásamt Norðurlöndunum.
02.05.2014
Í dag fór fram fundur Jafnréttisstofu og Félags Kvenna í Atvinnulífinu á Norðurlandi (FKA) um faglega og fjölbreytta forystu í fyrirtækjum. Jafnréttisstýra Kristín Ástgeirsdóttir opnaði fundinn og minntist niðurstaðna rannsókna sem sýna hvernig fjölbreytni í mannauði getur skilað fyrirtækjum betri niðurstöðu í rekstri.
11.04.2014
Skaðlegar karlmennskuhugmyndir, klámvæðing og kvenfyrirlitning voru meðal þess sem rætt var á fræðslufundum um gerð jafnréttisáætlana sem Jafnréttisstofa og Jafnréttisskólinn í Reykjavík stóðu fyrir í öllum hverfum borgarinnar 7.- 9. apríl sl. Fundirnir voru liður í aðstoð við leik- og grunnskóla, frístundaheimili og frístundamiðstöðvar vegna vinnu við aðgerðabundnar jafnréttisáætlanir.
10.04.2014