Þann 19. september 2008 stendur Háskólinn á Bifröst fyrir ráðstefnu um fjölbreytileika í stjórnum og æðstu stjórnunarstöðum fyrirtækja. Meðal fyrirlesara verður Eleanor Tabi Haller-Jorden, framkvæmdastjóri Catalyst í Evrópu, en Catalyst er leiðandi fyrirtæki í rannsóknum á sviði jafnréttis og viðskipta. Þá mun Marit Hoel, framkvæmdastjóri Centre for Corporate Diversity í Noregi og Nordic 500 könnunarinnar segja frá reynslu Norðmanna af kynjakvóta í stjórnum. Aðrir fyrirlesarar koma úr röðum háskólafólks og úr viðskiptalífinu.
26.05.2008
Í dag, fimmtudaginn 22. maí 2008, undirrituðu Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, Ólafur F. Magnússon borgarstjóri, Kristín Ástgeirsdóttir jafnréttisstýra, Lúðvík Geirsson bæjarstjóri, Árni Þór Hilmarsson, framkvæmdastjóri fræðslusviðs Kópavogsbæjar, Katrín Björg Ríkarðsdóttir, framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar Akureyrarbæjar og Jóhanna B. Magnúsdóttir, formaður fjölskyldunefndar í Mosfellsbæ, samstarfssamning um þróunarverkefnið Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum. Undirritunin fór fram í leikskólanum Hörðuvöllum í Hafnarfirði í kjölfar fyrsta vinnufundar verkefnisins sem er hrint úr vör í tengslum við Dag barnsins sunnudaginn 25. maí næstkomandi.
23.05.2008
Mánudaginn 26. maí kl. 12 í stofu 101 í Lögbergi, Háskóla Íslands verður haldinn fyrirlestur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Landsnefndar UNIFEM á Íslandi, um eflingu kvenna í Miðausturlöndum og Norður-Afríku.
22.05.2008
Dagana 28. til 30. janúar 2009 verður haldin norræn ráðstefna í Roskilde um karla og karlmennskur undir yfirskriftinni "Changing Men and Masculinities in Gender Equal Societies?".
20.05.2008
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað nýtt Jafnréttisráð og nýja kærunefnd jafnréttismála í samræmi við ný lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, sem tóku gildi 6. mars síðastliðinn.
20.05.2008
Tengslanet IV - Völd til kvenna verður haldin í Háskólanum á Bifröst dagana 29. og 30. maí 2008. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er Konur og réttlæti og á meðal fyrirlesara verða Judith Resnik prófessor við lagadeild Yale og Maud de Boer-Buquicchio annar framkvæmdastjóri Evrópuráðsins. Fjöldi áhugaverðra kvenna af ýmsum sviðum samfélagsins verður með framsögur í tengslum við megin þemað. Stjórnandi og skipuleggjandi Tengslanetsins frá upphafi er dr. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor.
19.05.2008
Auður Arna Arnardóttir, lektor í viðskiptadeild HR og Margrét Jónsdóttir, forstöðumaður á Alþjóðasviði við HR halda í dag erindi á vegum Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum, kl. 12:00 í Odda, stofu 101. Í erindinu greina þær frá niðurstöðum tveggja rannsókna sem styrktar voru úr Jafnréttissjóði.
08.05.2008
Föstudaginn 25. apríl standa jafnréttisnefnd Háskóla Íslands, jafnréttisnefnd Kennaraháskóla Íslands og Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands fyrir málþingi um jafnrétti á breiðum grundvelli, með yfirskriftinni Forskot með fjölbreytileika. Fjallað verður um jafnréttismál frá ýmsum sjónarhornum, og er markmiðið að skapa samræðu milli fræðafólks í báðum skólum, nemenda, stjórnsýslu, og annarra sem áhuga hafa á jafnréttismálum. Það er stefna Háskóla Íslands að vera ávallt í fararbroddi í jafnréttismálum og liður í því er að skapa og viðhalda umræðu um kynja- og jafnréttismál með margvíslegum hætti.
21.04.2008
Opinn fyrirlestur verður haldinn á vegum kennaradeildar Háskólans á Akureyri í dag 21. apríl kl. 16:30 í stofu 21, 2. hæð í Þingvallastræti 23. Fyrirlesari er Bob Lingard, prófessor við Edinborgarháskóla. Í fyrirlestrinum ræðir Lingard alþjóðlega strauma í orðræðu um menntun, einkum þá hugmynd að menntun drengja hafi farið hrakandi og hvaða áhrif þetta hefur á réttlátt skólastarf fyrir drengi sem stúlkur. Lingard styður í erindi sínu við tilviksrannsókn í Ástralíu og ræðir meðal annars skýrslur frá áströlsku ríkisstjórninni.
21.04.2008
Edda Jónsdóttir, sérfræðingur í mannréttindum heldur erindi á vegum Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum fimmtudaginn 17. apríl kl. 12:00 í Háskólabíói, sal 4 kjallari. Edda flytur erindi um íslenskar konur og alþjóðastofnanir og byggir erindið á lokaritgerð sinni um þátttöku Íslands í mannréttindatengdu starfi á vegum Sameinuðu þjóðanna, Evrópuráðsins og Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu.
14.04.2008