Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, kynnti sér starfsemi Jafnréttisstofu á Akureyri í vikunni og ræddi við starfsfólk um áherslur í jafnréttismálum og helstu verkefni stofnunarinnar. Í för með ráðherranum voru Matthías Páll Imsland, aðstoðarmaður ráðherra, Höskuldur Þórhallsson, þingmaður, Ingi Valur Jóhannsson, Rán Ingvarsdóttir og Margrét Erlendsdóttir.
23.08.2013
Norræna þekkingar- og upplýsingamiðstöðin um jafnréttismál, NIKK, hefur auglýst styrki vegna verkefna á sviði jafnréttismála. Umsóknarfrestur er til og með 15. september næstkomandi. Opnað verður fyrir umsóknir þann 15 ágúst.
13.08.2013
Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd og Félagsráðgjafardeild HÍ í samstarfi við MARK og Jafnréttisstofu bjóða upp á málstofu þann 20. ágúst n.k. í Lögbergi (101).
Í málstofunni mun Ann Shola Orloff, prófessor í félagsfræði við Northwestern Háskólann í Chicago flytja fyrirlestur sinn: Kyn, velferð og leiðir úr kreppum.
Málstofan hefst kl. 12:10 og er öllum opin.
13.08.2013
Þessari spurningu er velt upp í nýlegu meistaraverkefni Ragnheiðar G. Eyjólfsdóttur í Stjórnun og eflingu mannauðs (OBTM) frá Háskólanum í Reykjavík. Megin markmið rannsóknarinnar var að skoða hvernig starfsfólki á íslenskum vinnumarkaði gengur að samræma fjölskyldulíf sitt og atvinnu.
28.06.2013
Vinnuhópur sem falið var að fjalla um leiðir til að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf hefur skilað félags- og húsnæðismálaráðherra tillögum sínum og greinargerð. Velferðarráðherra skipaði hópinn í samstarfi við Jafnréttisráð og Jafnréttisstofu haustið 2012.
27.06.2013
Fjölmennt var í fyrstu kvennasögugöngu um Oddeyrina á Akureyri þann 19. júní sl. en hátt í 200 manns hófu gönguna frá Ráðhústorgi. Margir einstaklingar komu að göngunni í ár aðrir en leiðsögumaðurinn Örn Ingi Gíslason og leikkonan Saga Jónsdóttir sem fjallaði á skemmtilegan og upplýsandi hátt um Vilhelmínu Lever sem kaus fyrst kvenna til sveitarstjórnar á Íslandi fyrir 140 árum. Þátttakendur í göngunni mættu ýmsum leiknum karakterum á götum eyrarinnar en ungt fólk úr verkefninu „Skapandi sumarstörf“ hjá Akureyrarbæ setti sig í stellingar íbúa á eyrinni. Eigendur fornbíla keyrðu um eyrina með farþega frá liðnum tíma.
26.06.2013
Kristín A. Árnadóttir sendiherra flutti erindi um kynjajafnrétti og stöðu jafnréttismála á Íslandi í Kvennaháskóla Kína (China Women’s University) í Peking í lok maí. Fyrirlesturinn var upphaf fundaraðar í háskólanum með fulltrúum erlendra ríkja. Fyrirlesturinn fór fram í hátíðarsal skólans og voru um 400 nemendur, kennarar og aðra gestir viðstaddir.
21.06.2013
Jafnréttisstofa vill vekja athygli á að nýtt tölublað af 19. júní er komið út. 19. júní er ársrit Kvenréttindafélags Íslands og með elstu tímaritum hér landi, en fyrsti árgangur blaðsins kom út árið 1951. Í rúmlega sextíu ár hafa í tímaritinu birst greinar sem tengjast konum, kvenfrelsi og kvennamenningu. Þessar greinar eru ómetanleg heimild um samfélagssögu síðustu áratuga. Að þessu sinni er tímaritið gefið út með nýju sniði ætlað nýrri öld. 19. júní kemur út á rafrænu formi sem allir hafa aðgang að í snjallsímum, spjaldtölvum og á tölvum. Vitaskuld er svo hægt að prentað tímaritið í heild, eða hluta, út og lesa þannig.
20.06.2013
Evrópusambandið hefur haft töluverð áhrif á þróun jafnréttismála innan aðildarríkja sinna. Kynjajafnrétti er eitt af grundvallaratriðum Evrópusamrunans og þarf að samþætta það inn í öll stefnumarkmið ESB. Agnès Hubert, sérfræðingur um jafnréttismál innan ESB, heldur erindi á tveim opnum fundum, á Akureyri og í Reykjavík.
19.06.2013
Lagður verður blómsveigur frá Reykvíkingum að leiði baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, að athöfninni lokinni verður gegnið að Hallveigarstöðum þar sem Kvenréttindafélagið og Kvenfélagasambandið bjóða til kaffisamsætis og flutt verða stutt ávörp í tilefni dagsins. Seinna um kvöldið býður Kvennakirkjan, Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Íslands til messu við Þvottalaugarnar í Laugardal.
18.06.2013