Samtök um Kvennalista voru stofnuð 13. mars 1983 og buðu samtökin fram lista í þremur kjördæmum við alþingiskosningar vorið 1983.
Kvennalistinn hlaut 5,5% atkvæða og þrjár konur komust á þing, þær Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir og Kristín Halldórsdóttir.
Kvennalistinn hlaut 10,1% atkvæða í þingkosningunum 1987 og kom sex konum á þing. Árið 1991 var fylgið 8,3% og fimm þingkonur en 4,9% og þrjár þingkonur árið 1995.
13.03.2013
Mannréttindaskrifstofa og mannréttindaráð Reykjavíkurborgar hefur gefið út bæklinginn Kynlegar tölur sem kemur nú út í þriðja sinn. Bæklingurinn hefur að geyma tölfræðilegar upplýsingar þar sem varpað er ljósi á ólíka stöðu karla og kvenna eins og hún birtist á ýmsan hátt í borginni og á landinu.
13.03.2013
Undanfarna mánuði hefur starfsfólk Jafnréttisstofu heimsótt grunn- og framhaldsskóla og frætt nemendur um kynjajafnrétti, helstu hlutverk Jafnréttisstofu og staðalmyndir kynjanna í fjölmiðlum og almennt í okkar samfélagi.
Boðið hefur verið upp á fræðslu fyrir nemendur í öllum árgöngum grunnskólans að beiðni nokkurra sveitarfélaga en framhaldsskólarnir hafa leitað eftir fræðslu í tengslum við ákveðna námsáfanga og þemadaga.
12.03.2013
Jafnréttisstofa gefur út bæklinginn Konur og karlar á Íslandi 2013 í samstarfi við við Hagstofu Íslands og velferðarráðuneytið. Um er að ræða samantekt á helstu tölum og hlutfall kynjanna í ýmsum málaflokkum. Í bæklingnum er meðal annars að finna upplýsingar um stöðu kynjanna á vinnumarkaði, í menntakerfinu og í áhrifastöðum, ásamt upplýsingum um mannfjölda, fjölskyldur og fæðingarorlof. Bæklingurinn veitir ákveðna yfirsýn yfir stöðu jafnréttismála á Íslandi og er hann einnig gefinn út á ensku.
12.03.2013
Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars verður boðið upp á spennandi viðburði í Reykjavík, á Akureyri og í Kaupmannahöfn. Fjallað verður um kynhlutverk og kynskiptan vinnumarkað, útlitsdýrkun og lýtaaðgerðir, nýjar leiðir á traustum grunni, hrun og heimsmet í kynjajafnrétti og þjónusta við þolendur kynferðisofbeldis. Í tilefni dagsins verður einnig stofnað nýtt félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda. Jafnréttisstofa hvetur alla til að kynna sér viðburði dagsins.
11.03.2013
Árlega baráttusamkoma íslenskra kvenna í Jónshúsi verður föstudaginn 8. mars. Í vor verður kosið til Alþingis og ber dagskráin keim af því. Dr. Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands, flytur erindi kvöldsins: „Hrun og heimsmet í kynjajafnrétti? Femínisminn – fimm árum síðar“. Að erindi hennar loknu ræða fjórar þingkonur hvað áunnist hefur í jafnréttismálum á undanförnum árum og hver þær telji brýnustu viðfangsefnin á næsta kjörtímabili.
05.03.2013
Hinn 8. mars á alþjóðlegum baráttudegi kvenna er boðað til stofnfundar nýs félags, sem hefur fengið nafnið Rótin – félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda. Markmið Rótarinnar eru að stofna til umræðu um konur, fíkn, áföll og ofbeldi og huga að sérstökum meðferðarúrræðum fyrir konur. Félagið vill að komið sé á samstarfi á milli stofnana, samtaka og annarra fagaðila sem fást við vímuefnameðferð, ofbeldi og úrvinnslu áfalla. Félagið vill beita sér fyrir öflun upplýsinga og úrvinnslu fyrirliggjandi gagna um þessi málefni konum til góða, og stuðla að rannsóknum á þessu sviði. Ennfremur að afla þekkingar, halda fyrirlestra, standa að ráðstefnum og námskeiðum, eitt eða í samstarfið við önnur félög, og efla umræður um fíknitengd málefni sem snerta konur sérstaklega.
04.03.2013
Þann 8. mars munu Zontaklúbbarnir á Akureyri í samstarfi við Jafnréttisstofu, FSA, Akureyrarbæ, Íslandsbanka, Landsbankann og Sparisjóð Höfðhverfinga boða til hádegisfundar á hótel Kea um útlitsdýrkun og lýtaaðgerðir.
Á fundinum mun Ebba M. Magnúsdóttir, fæðingar- og kvensjúkdómalæknir velta fyrir sér hvers vegna konur fara í lýtaaðgerðir og afleiðingum þeirra, hvað stýrir sjálfsmynd kvenna á 21. öldinni og hvort útlitsdýrkun sé farin út fyrir ákveðin mörk.
Fundarstjóri: Dr. Ólöf Sigurðardóttir, yfirlæknir á rannsóknardeild FSA
04.03.2013
Í tilefni alþjólegs baráttudags kvenna þann 8.mars verður haldinn hádegisverðarfundur á Grand Hótel Reykjavík undir yfirskriftinni „Kynhlutverk og kynskiptur vinnumarkaður, ný kynslóð nýjar hugmyndir?“ Dagskráin er skipulögð í samstarfi ASÍ, BSRB, BHM, KÍ, Jafnréttisráðs og Jafnréttisstofu. Á dagskránni eru þrjú erindi sem öll fjalla um ungt fólk.
04.03.2013
Í fréttatilkynningu frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) kemur fram að launamunur kynjanna sé 16,2%. Er þá um að ræða meðaltalsmun á tímakaupi kvenna og karla í öllum aðildarlöndum ESB. Dagurinn í dag, 28. febrúar, er 59. dagur ársins og markar því þann fjölda daga sem konur þurfa að vinna aukalega til þess að vinna sér inn jafn há laun og karlar á einu ári. Til að varpa ljósi á vandamálið og auðvelda aðildarríkjum ESB að vinna gegn launamisrétti hefur framkvæmdastjórnin tekið saman gögn og upplýsingar um fyrirmyndaaðgerðir.
28.02.2013