Samráðshópur um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins sem innanríkisráðherra skipaði í mars 2016 hefur skilað ráðherra fyrstu tillögum um aðgerðir á þessu sviði. Hópnum var falið að kortleggja stöðu mála í dag, skilgreina styrkleika og tækifæri og leggja fram aðgerðaáætlun sem miði meðal annars að því að tryggja réttaröryggi, tryggja vandaða málsmeðferð og auka traust til réttarvörslukerfisins. Gert er ráð fyrir að samráðshópurinn starfi áfram að verkefninu og að fullmótuð aðgerðaráætlun verði tilbúin í haust.
03.06.2016
Fjallað verður um undirbúning skýrslu um stöðu mannréttindamála á Íslandi á opnum fundi á vegum innanríkisráðuneytisins næstkomandi þriðjudag, 7. júní. Fundurinn fer fram í Iðnó í Reykjavík á milli klukkan 9 og 12, og er öllum opinn.
Vinnuhópur á vegum innanríkisráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, velferðarráðuneytis, umhverfis- og auðlindaráðuneytis og utanríkisráðuneytis hefur að undanförnu unnið að skýrslu um stöðu mannréttindamála á Íslandi. Um er að ræða reglubundna athugun Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttinda í svokölluðu Universal Periodic Review (UPR) og er þetta í annað skiptið sem slík athugun fer fram hér á landi en sú fyrsta fór fram árið 2011.
02.06.2016
Finnland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2016. Aðal áherslan í formennskuáætlun Finnlands er á vatn, náttúru og fólk. Í norræna samstarfinu um jafnréttismál leggur Finnland áherslu á að vinna gegn kynbundnu ofbeldi, stuðla að jafnrétti kynjanna í fjölmiðlum og kynjasjónarmið í heilsuvernd. Þessar áherslur eru í samræmi við samstarfsáætlun jafnréttisráðherranna 2015-2018 sem ber titilinn „Saman fyrir jafnrétti“. Finnarnir leggja jafnframt áherslu á þverfaglegt samstarf innan ráðherranefndarinnar.
01.06.2016
Jafnréttisstofa heimsótti Kaupfélag Skagfirðinga, fimmtudaginn 26. maí sl. með fræðslu um jafnréttislög og gerð jafnréttisáætlana. Stjórnendur og starfsfólk ýmissa deilda vann í hópum þar sem hafist var handa við gerð aðgerðabundinnar jafnréttisáætlunar fyrir Kaupfélagið.
Mánudaginn 30. apríl var Jafnréttisstofa með samskonar fræðslu fyrir Farfugla sem nú eru í viðamikilli vinnu við að móta stefnu og framtíðarsýn fyrir fyrirtækið. Einn liður í þeirri vinnu er að fyrirtækið setji sér aðgerðabundna jafnréttisáætlun.
31.05.2016
Í dag afhenti Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs. Að þessu sinni voru það tveir aðilar sem hlutu viðurkenninguna, Samtök um Kvennaathvarf og Reykjavíkurborg.
24.05.2016
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum tilfjögurra ára . Þetta er í sjötta sinn sem slík áætlun er lögð fram en markmið hennar er að tilgreina þau verkefni sem brýnust eru talin á sviði kynjajafnréttis.
20.05.2016
Miðvikudaginn 18. maí verða 40 ár liðin frá því að fyrstu jafnréttislögin voru samþykkt. Síðan þá hafa þau verið endurskoðuð fjórum sinnum sem endurspeglar þá þróun sem orðið hefur með nýjum áherslum, nýjum málefnum og nýjum leiðum. Margt hefur áunnist en það er líka mikið verk að vinna.
Jafnréttisstofa boðar til fundar að Borgum, Akureyri kl. 12.00-13.15 á afmælisdaginn. Stutt erindi flytja Kristín Ástgeirsdóttir framkvæmdastýra, Brynhildur Flóvenz dósent í lögum við HÍ og Ingibjörg Elíasdóttir lögfræðingur Jafnréttisstofu.
13.05.2016
Í velferðarráðuneytinu er starfræktur Jafnréttissjóður Íslands sem stofnaður var með samþykki þingsályktunar 1009/2015 í tilefni af 100 ára kosningaréttarafmæli íslenskra kvenna. Megintilgangur Jafnréttissjóðs Íslands er að fjármagna eða styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga, fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka.
06.05.2016
Á Jafnréttistorgi miðvikudaginn 20. apríl kl. 12.00-12.50 flytur Dr. Marta Einarsdóttir sérfræðingur við RHA erindi sem nefnist ,,Konur sem ganga menntaveginn virða ekki karla”: Menntun og atvinnuþátttaka kvenna í Mósambík sem ógnun við kynjahlutverk.
Erindið er byggt á etnógrafískri doktorsrannsókn Dr. Mörtu Einarsdóttur, sem bjó í litlu þorpi í Mósambík, hjá einstæðri móður og fjölskyldu hennar og skoðaði þær hindranir sem sumar giftar konur urðu fyrir þegar þær hófu nám á ný á fullorðinsaldri. Fjallað er um hvernig sumir karlar túlka aukna menntun og atvinnuþátttöku kvenna sem ógnun við karlmennskuímyndina og kynhlutverk sitt sem ,,fyrirvinna” og ,,húsbóndi.” Þessi andstaða birtist á mismunandi hátt, frá úrtölum upp í andlegt og líkamlegt ofbeldi.
18.04.2016
Í síðustu viku hélt Sambands íslenskra sveitarfélaga, Jafnréttisstofa og Jafnréttisráð vel heppnað málþing um Jafnrétti í
sveitarfélögum. Áhersla var á að sýna hvernig jafnrétti kynjanna getur aukið gæði þeirrar þjónustu sem sveitarfélögin veita. Nú er hægt að sjá öll erindin á heimasíðu Sambandsins.
06.04.2016