Fréttablað um jafnréttismál.
08.05.2007
Föstudaginn 4. maí næstkomandi verður fjallað um vinnurétt á málþingi í Háskólanum á Bifröst. Rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttismála stendur að vinnuréttardeginum í samstarfi við Vinnuréttarfélag Íslands og lagadeild Háskólans á Bifröst.
30.04.2007
Út er komin bókin "Män i rörelse. Jämställdhet, förändring och social innovation i Norden." Bókin er afrakstur samnorræns verkefnis á sviði velferðarannsókna en þar var sjónum sérstaklega beint að félagslegum frumkvöðlum og samspili atvinnu- og fjölskyldulífs á Norðurlöndum.
25.04.2007
Evrópuárið 2007, Ár jafnra tækifæra fyrir alla, á að vekja athygli almennings á að allir eigi rétt á jöfnum tækifærum án tillits til uppruna, kyns, trúar, lífsskoðunar, kynþáttar, fötlunar, kynhneigðar og aldurs. Árið verður sett formlega í Iðnó þann 25. apríl.
25.04.2007
Valgerður Sverrisdóttir er fyrsta konan til að gegna embætti utanríkisráðherra í sögu íslenska lýðveldisins og hefur í starfi sínu lagt sérstaklega áherslu á jafnréttismál. Í erindi á Jafnréttistorgi í dag fjallar Valgerður vítt og breitt um jafnrétti og utanríkismál og um ólíkar áherslur kynjanna í hinum ýmsu málaflokkum.
23.04.2007
Samráðshópur til þess að undirbúa vottun jafnra launa hér á landi hefur skilað tillögum sínum. Markmiðið með þeim er að fá fyrirtæki og stofnanir til að afla sér vottunar á því að unnið sé með markvissum hætti að launajafnrétti kynjanna.
20.04.2007
Jafnréttisstofa fær oft góða gesti í heimsókn, sem vilja kynna sér starfsemi stofunnar.
16.04.2007
Álit Kærunefndar jafnréttismála vegna launamáls á hendur Landsspítala -háskólasjúkrahús. Ekki var talið að um brot hefði verið að ræða. Álitið má lesa hér.
12.04.2007
Í gær flutti Ingólfur V. Gíslason erindið Eru karlar hræddir við bleika gúmmíhanska? við góðar undirtektir en um 65 manns mætti á fundinn. Glærurnar ásamt fjölmiðlaumfjöllun um erindið eru nú aðgengileg á heimasíðunni.
29.03.2007
Samkvæmt fréttum frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gegna konur þrem af hverjum fjórum nýjum störfum í Evrópu. Þrátt fyrir þetta ríkir enn mikil munur á milli kynjanna á vinnumarkaði. Aukin menntun kvenna hefur ekki enn skilað sér að fullu, því enn vinna þær minna og fá minna borgað en karlar. Þetta er eitt af því sem fram kemur í skýrslu framkvæmdastjórnarinnar um jafnrétti kvenna og karla á árinu 2007.
28.03.2007