SFR - stéttarfélag hefur lagt mikla áherslu á launajafnrétti kynjanna og jafnréttismál í starfi sínu. Á síðustu misserum hafa ýmsir haldið því fram að jafnréttismálin séu síður á dagskrá vegna þeirra erfiðleika í efnahagsmálum sem íslenska þjóðin er að ganga í gegnum. Það er skoðun SFR að ef einhverju sinni hafi verið þörf á að huga sérstaklega að jafnréttismálum, þá sé það nú. Jafnrétti má ekki verða afgangsstærð í uppbyggingu og endurnýjun samfélagsins. Þvert á móti. Jafnrétti kynjanna er mikilvægara en nokkru sinni. Endurreisa þarf íslenskt samfélag þar sem velferð þegnanna, réttsýni og jafnrétti verða þau gildi sem skipað verður í öndvegi. SFR leggur áherslu á að jöfn staða kynjanna sé ein af forsendum farsældar. Þess vegna stendur SFR fyrir ráðstefnuröð um jafnrétti á komandi vikum og verður ráðstefna haldin í öllum landsfjórðungum. Fyrsta ráðstefnan verður á Akureyri þann 8. mars næstkomandi, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Síðan verður haldið til Egilsstaða þann 14. apríl, til Ísafjarðar 20. apríl og endað í Reykjavík þann 28. apríl.
02.03.2010
Á Jafnréttistorgi miðvikudaginn 3. mars mun Anna Lilja Þórisdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku, fjalla um glænýja meistararannsókn sína sem nefnist Dáðleysi kvenna. Eða er öðru um að kenna? Stjórnmálakonur í fjölmiðlum fyrir Alþingiskosningarnar 2009.Fyrirlesturinn verður fluttur kl. 12.00 í stofu L 201 í Sólborg v/Norðurslóð
02.03.2010
Að undanförnu hafa orðið töluverðar umræður um hlut kvenna í stjórnum og við stjórnun fyrirtækja á Íslandi. Rannsóknir hafa leitt í ljós að hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja og sem stjórnendur er afar lágt. Samkvæmt nýlegri könnun Hagstofunnar eru karlar níu af hverjum tíu framkvæmdastjórum, stjórnarformönnum og stjórnarmönnum fyrirtækja með 50 starfsmenn eða fleiri. Þar segir einnig að á tímabilinu 19992007 hafi kynjaskipting stjórnarmanna og stjórnarformanna nánast verið sú sama, 20% konur og 80% karlar.
19.02.2010
Út er komið hagtíðindaheftið Launamunur kynjanna á almennum vinnumarkaði 20002007. Í því er greint frá helstu niðurstöðum úr rannsókn á launamun kynjanna á almennum vinnumarkaði. Rannsókn Hagstofunnar nær einungis til hins almenna vinnumarkaðs og er því ekki sambærileg við aðrar launakannanir. Óútskýrður launamunur milli kynjanna er minni hér en í öðrum launakönnunum sem skýrist af því að hér eru mjög margar skýringabreytur notaðar.
18.02.2010
Fyrirtækið Vodafone hefur ákveðið að hætta sölu á klámi í gegnum vefgátt fyrir farsíma, Vodafone live og leigu myndefnisins í sjónvarpi Vodafone.
17.02.2010
Það eru fáir dagar sem setja jafn mikinn svip á bæjarlífið á Akureyri og öskudagur. Sjaldan hafa eins mörg lið sungið fyrir okkur á Jafnréttisstofu og greinilegt að sú skemmtilega hefð að æfa söng og setja saman frumlega búninga er ekki á undanhaldi hér í bæ.
17.02.2010
Jafnréttisráð hefur sent frá sér ályktun um hlutdeild kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs þar sem skorað er á Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskipatráð Íslands og Samtök atvinnulífsins að beita áhrifum sínum til þess að ná sem fyrst fram markmiðum sínum um 40% hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja.
10.02.2010
Fimmtudagskvöldið, 28. janúar var haldið kynningarkvöld fyrir konur um stjórnmál í sal stéttarfélagsins Framsýnar á Húsavík.
08.02.2010
Sigríður Lillý Baldursdóttir og Brynhildur Flóvenz ræða um tvö af stærri tímamótum í réttindabaráttu kvenna: Kvennaráðstefnuna í Peking 1995 og Kvennasáttmála Sameinuðu Þjóðanna á Unifem umræðum laugardaginn 6. febrúar kl. 13:00 í húsnæði Miðstöðvar Sameinuðu þjóðanna að Laugarvegi 42. Fundurinn stendur í klukkutíma, aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
02.02.2010
Föstudaginn 5. febrúar verður málþingið Kyn og loftslagsbreytingar haldið í Háskóla Íslands, stofu 101 Lögbergi, kl. 14.30-16.45.
01.02.2010