Fljótsdalshérað boðar til landsfundar jafnréttisnefnda sveitarfélaga 8. - 9. október n.k.
Landsfundur jafnréttisnefnda er haldinn árlega og er kjörinn vettvangur fyrir fólk sem vinnur að jafnréttismálum innan sveitarfélaga til að koma saman og ræða málin, fræðast og fá góðar hugmyndir.
07.10.2015
Hvaða árangri hefur samþætting kynjasjónarmiða (e. Gender Mainstreaming) skilað fram til þessa? Hefur innleiðing samþættingar leitt til aukins jafnréttis? Á hvaða sviðum hefur samþætting virkað og hvar ekki? Hversu vel hefur okkur tekist að nýta hugmyndafræði samþættingar og þau verkfæri sem hún hefur alið af sér? Hvaða kostir og gallar hafa komið í ljós, m.a. ef horft er til samtvinnunar (e. intersectionality) við aðrar víddir jafnréttis? Á þessu ári eru 20 ár frá því að samþætting var formfest á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og því kalla Jafnréttisnefnd HÍ og Jafnréttisstofa til fólk með reynslu og þekkingu á sviðinu til að taka púlsinn á samþættingu.
06.10.2015
Háskólar landsins standa saman að ljósagjörningi í hádeginu í dag, mánudaginn 5. október til að undirstrika mikilvægi mannréttinda og umræðu um jafnréttismál. Dagurinn markar jafnframt upphaf jafnréttisdaga og fræðsluviðburða um jafnréttismál sem fara fram í skólunum sjö. Þetta er í fyrsta sinn sem skólarnir vinna saman að gjörningi tengdum jafnréttismálum en viðburðurinn hefur einnig skírskotun í Alþjóðlegt ár ljóssins á vegum Sameinuðu þjóðanna.
05.10.2015
Glöggir lesendur heimasíðu Jafnréttisstofu hafa tekið eftir því að dagatal stofunnar hefur verið að taka breytingum. Ástæðan er sú að Jafnréttisstofa hefur tekið upp samstarf við norrænt dagatal til að kynna atburði á sviði jafnréttis kynjanna. Um er að ræða vefgátt þar sem atburðir á dagatal Jafnréttisstofu sjást einnig á norræna dagatalinu GenderKalenderN. Jafnréttisstofa hvetur alla sem eru að skipuleggja atburði sem tengjast jafnrétti kynja til að hafa samband og auglýsa viðburði sína á þessum nýja vettvangi.
05.10.2015
Komin er út skýrsla Jafnréttisstofu um nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneytanna. Í skýrslunni er að finna greiningu á skiptingu kynjanna í nefndum, stjórnum og ráðum á starfsárinu 2014 auk þess sem farið er yfir þróun síðustu ára. Árið 2008 var leiddur í lög kynjakvóti í nefndum, stjórnum og ráðum á vegum ríkisins og hefur Jafnréttisstofa eftirlit með framkvæmd hans.
30.09.2015
Innköllun jafnréttisáætlana grunnskóla er lokið og skiluðu 96% grunnskóla fullnægjandi jafnréttisáætlun eða umbeðnum gögnum til Jafnréttisstofu. Jafnréttisstofa óskar skólunum alls hins besta í skóla- og jafnréttisstarfinu og vekur um leið athygli á 18. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla en þar segir í 3. málsgrein:
Fyrirtæki og stofnanir skv. 2. mgr. skulu afhenda Jafnréttisstofu afrit af jafnréttisáætlun eða starfsmannastefnu sinni ef jafnréttisáætlun er ekki fyrir hendi ásamt framkvæmdaáætlun þegar Jafnréttisstofa óskar eftir því. Enn fremur skulu fyrirtæki og stofnanir skv. 2. mgr.
afhenda Jafnréttisstofu skýrslu um framgang mála þegar Jafnréttisstofa óskar eftir því innan hæfilegs frests.
Í samræmi við ofangreint mun Jafnréttisstofa kalla eftir skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála frá grunnskólum skólaárið 2016 – 2017.
29.09.2015
Á haustmisseri opna Stígamót dyrnar upp á gátt og bjóða upp á morgunverðarfyrirlestra um margbreytileika og forréttindi. Tilgangur þessarar fyrirlestrarraðar er að skoða hvernig ólíkur bakgrunnur ýmissa hópa hefur áhrif á forréttindi, fordóma og mismunun. Sérstök áhersla verður á ofbeldi og aðgang að þjónustu til að vinna úr afleiðingum þess.
22.09.2015
„Íslenskum karlmönnum vefst ekki tunga um tönn“ var yfirskrift 15 ára afmælis Jafnréttisstofu sem haldið var hátíðlegt í gær 15. september. Í tilefni dagsins settu þrír karlmenn upp kynjagleraugu og tjáðu sig um jafnrétti kynjanna.
Um hundrað manns þáðu afmælisboð Jafnréttisstofu og gæddu sér á íslenskri kjötsúpu við harmonikkuleik Hildar Petru Friðriksdóttur, ráðgjafa hjá Virk starfsendurhæfingarsjóði. Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu fór yfir stöðu mála og Rósa Guðrún Erlingsdóttir, sérfræðingur í Velferðarráðuneytinu, flutti kveðju frá Eygló Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra. Því næst var körlunum gefið orðið.
18.09.2015
Jafnréttisstofa gaf nýlega út bæklinginn Lykilinn að velgengni á vinnumarkaði. Um er að ræða endurútgáfu á bæklingi sem gefinn var út árið 2000 sem hluti af jafnréttisátaki Háskóla Íslands, Jafnréttisstofu og Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur. Markmiðið með útgáfu bæklingsins er að veita þeim sem eru í þann mund að fara út á vinnumarkaðinn hagnýt ráð um atvinnuleit og fyrstu skrefin á vinnumarkaði.
17.09.2015
Í tilefni af 15 ára afmæli Jafnréttisstofu kemur í dag út útgáfa með tölulegum upplýsingum um stöðu kvenna og karla á ýmsum sviðum íslensks samfélags.
Efnistökum er skipt í kafla sem fjalla um; íbúa og fjölskyldur, vinnumarkað og laun, menntamál, stjórnmál, áhrifastöður í samfélaginu, heilbrigðismál ásamt tölfræði um afbrot og ofbeldi.
15.09.2015