Jafnréttisstofa og Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri halda ráðstefnu þann 26. maí nk.um heilbrigði kvenna í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna.
Ráðstefnan er öllum opin en hún fer fram í stofu M101 í HA frá kl. 9 .00-17.00.
08.05.2015
Styrkjum til atvinnumála kvenna var úthlutað við hátíðlega athöfn í Bláa lóninu þann 30. apríl síðastliðinn. Alls fengu 33 verkefni styrki að heildarupphæð kr. 35 milljónir. Sjóðnum bárust 239 umsóknir sem ráðgjafarnefnd hefur metið á undanförnum vikum. Ingibjörg Elíasdóttir, lögfræðingur á Jafnréttisstofu, á sæti í ráðgjafanefndinni en nefndin er einnig skipuð fulltrúum frá velferðarráðuneyti, Vinnumálastofnun og Byggðastofnun. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhenti styrkina í ár.
05.05.2015
Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogs efnir til afmælismálþings miðvikudaginn 6. maí. Málþingið er haldið í Salnum í Kópavogi.
Karlar og femínismi, forréttindi og 6dagsleiki er meðal þess sem rætt verður á málþinginu þar sem rýnt er í jafnréttismál í samtímanum frá breiðu sjónarhorni. Þá verður ný jafnréttis- og mannréttindastefna bæjarins kynnt en hún var samþykkt í bæjarstjórn í liðinni viku.
Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar fagnar 40 ára afmæli á árinu en Kópavogur var fyrst sveitarfélaga til að setja nefnd um jafnréttismál á laggirnar.
05.05.2015
Í síðustu viku fékk Jafnréttisstofa heimsókn frá Human Rights Monitoring Institute í Litháen. Markmið ferðar þeirra til Íslands var að kynna sér starfsemi stofnanna og félagasamtaka hér á landi og mögulegt samstarf í gegnum styrkjakerfi EFTA. Á fundinum með Jafnréttisstofu var farið yfir stöðu jafnréttismála á Íslandi, jafnréttislöggjöfina og fjallað nánar um nokkur atriði sem gestirnir höfðu áhuga á að kynna sér. Þar ber helst að nefna fæðingarorlofskerfið og kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð.
28.04.2015
Jafnréttisráð veitir árlega jafnréttisviðurkenningar en í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna ákvað Jafnréttisráð í ár að heiðra þær núlifandi konur sem með störfum sínum á Alþingi og í ríkisstjórn hafa rutt brautina og stuðlað að auknu jafnrétti á sviði stjórnmálanna.
Konurnar eiga sammerkt að hafa verið fyrstar núlifandi kvenna til að gegna veigamiklum embættum í íslenskum stjórnmálum, þ.e. sem forseti Alþingis, sem ráðherra og sem formenn þingflokka.
Nánari upplýsingar um verðlaunahafa og myndir frá afhendingunni má sjá á síðu Velferðarráðuneytis.
27.04.2015
Skýrslan Gender Equality in the Arctic: Current Realities, Future Challenges er komin út. Skýrlan er unnin af utanríkisráðuneytinu og byggir á tveggja daga alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin var á Akureyri í lok október síðastliðinn.
22.04.2015
Vefsíðan fjolbreyttforysta.is er í eigu Jafnréttisstofu og er unnin með styrk frá Progress sjóði ESB. Síðunni er ætlað að vekja athygli á mikilvægi jafnrar þátttöku kynjanna í forystu íslensks atvinnulífs.
Á vefsíðunni er að finna fræðsluefni um stjórnarhætti og stjórnunarstörf og viðtöl við fólk með reynslu af stjórnarsetu, sérfræðinga og fólk úr atvinnulífinu.
20.04.2015
Í morgun gerðist Guðmunda Finnbogadóttir starfsmaður á Jafnréttisstofu. Tilefnið var Fyrirmyndardagurinn sem haldinn er hátíðlegur í dag 17. apríl af frumkvæði Vinnumálastofnunar. Markmið dagsins er að gefa fyrirtækjum og stofnunum tækifæri til að bjóða einstaklingum með skerta starfsgetu að vera gestastarfsmenn í einn dag eða hluta úr degi. Guðmunda gekk rösklega til verks og raðaði fundargögnum í fimmtíu möppur á mettíma.
17.04.2015
Út er kominn bæklingur sem lýsir stuttlega stöðu jafnréttis á nokkrum sviðum samfélags og lífs fólks á Norðurlöndunum. Meðal þeirra sviða sem lýst er á myndrænan hátt eru: fjölskyldur, vinnumarkaður, menntun, heilbrigði, áhrifastöður, tekjumismunur og völd.
Útgáfan er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni, sem er samstarfsvettvangur ríkisstjórna Norðurlanda. Frekari upplýsingar hér
10.04.2015
Endurmenntunarstofnun í samstarfi við velferðarráðuneytið stendur að námskeiði um vottun jafnlaunakerfa. Á námskeiðinu verður fjallað um lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, vinnurétt, kjarasamninga, launagreiningar og flokkun og mat á verðmæti starfa. Námskeiðinu lýkur með útgáfu skírteinis fyrir þá sem ljúka námskeiðinu með prófi.
09.04.2015